Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Formaður Neytendasamtakanna segir dæmi um að fólk missi húsnæði vegna smálánaskuldar

Í hverri viku fær Neytenda­samtökin tugi mála á borð til sín er varða smálána­fyrirtæki. Almenn innheimta tekur að sér að innheimta fyrir þessi fyrirtæki. Vextir lánanna standast ekki íslensk lög og hafa Neytenda­samtökin ítrekað sent fyrir­spurnir til innheimtu­fyrir­tækisins. Enn er þeim ósvarað.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.

„Til okkar leita fjöldi fólks sem tekið hafa smálán,” segir Breki Karlsson, formaður Neytenda­samtakanna. „Almenn innheimta tekur að sér að innheimta fyrir þessi smálana­fyrirtæki. Ólíkt öllum öðrum fyrir­tækjum þá hafa þeir ekki svarað okkar fyrir­spurnum. Sem er ótrúlega magnað.” Þá segir hann að smálana­vextir sem þessi fyrirtæki krefjast standa ekki íslensk lög.

Tekið útaf reikningum í leyfisleysi

„Þegar þú ert að taka að þér innheimtu fyrir aðila þá þarftu að vita hvað þú ert að innheimta. Skuldarar hafa alltaf rétt á að vita hvernig skuldin þeirra er samansett,” segir Breki. „Þeir hafa ekki orðið við því að senda skjólstæðingum okkar sundur­liðun á kröfunni heldur hafa þeir í sumum tilvikum laumast inn á reikninganna þeirra og tekið út af þeim, að þeim forspurðum.” Hann segir skýrt leyfi lántakans ekki liggja fyrir. „Það er háalvarlegt mál.”

„Þegar að fólk tekur smálán þá gengst það undir það að fyrir­tækin megi taka útaf reikningnum þeirra fyrir upphæðinni” segir hann og bætir við; „En upphæðin sem þeir taka út er ólöglega há því hún ber ólöglega vexti.”

„Þegar það er ólögleg upphæð tekin útaf kortinu þínu er ákveðið ferli sem bankarnir og korta­fyrirtækin eru með. Við hvetjum alla sem hafa orðið fyrir því að láta taka af reikningnum sínum fyrir smálánum að kanna hvort þeir eigi ekki endur­kröfurétt.” Breki bendir lánþegum á að kvarta við bankann sinn, korta­fyrirtækið eða hvoru tveggja. Ferlið sé hið sama og þegar óprúttnir aðilar stela korta­upplýsingum einstaklinga.

Segja starfsemina vera í Danmörku til að komast hjá íslenskum lögum

Breki segir smálána­fyrirtækin hafa skýlt sig á bak við erlenda starfsemi og sagst vera dönsk. Neytenda­samtökin sendu erindi til Atvinnuvega­ráðuneytisins í fyrra sem skipaði starfshóp til að rannsaka málið. Hópurinn skilaði skýrslu í febrúar 2019. „ Í skýrslunni kemur berlega fram að íslensk lög séu nógu sterk. Þeir sem lána í íslenskum krónum á íslensku til íslenskra lántaka ber að lúta íslenskum lögum.”

Breki segir samtökin hafa sent fyrir­spurn út til umboðs­manns neytenda í Danmörku og fjármála­eftirlitsins. „Við erum búnir að fá eitt svar til baka, frá fjármála­eftirlitinu, sem segir að þeir hafi ekkert með þetta fyrirtæki að gera. Þetta starfi ekki í Danmörku.” segir hann og bætir við; „Þeir eru í sjálfu sér sammála niður­stöðu þessarar nefndar að danska fjármála­eftirlitið hafi ekkert vald eða umsjón með íslenskum lánum í íslenskum krónum.”

Dæmi um að lántakar missi íbúðir

Breki segir þessa ólöglegu starfsemi fái að grassera þrátt fyrir allt. „Það er ekki nógu skýrt eftirlit eða ekki nógu miklar vald­heimildir virðist vera.” Hann bætir við að ráðherra hefur boðað að sett verði ný lög. „Við auðvitað fögnum því en á meðan er fólk að missa íbúðirnar sínar og í stökustu vandræðum.”

„Við teljum með hverjum deginum sem líður er verið að níðast á fólki sem oft er ekki í stakk búið til að bera hendur fyrir höfuð sér.” Breki segir Neytenda­samtökin fá hátt í tuttugu mál á borð til sín vikulega. „Þetta er erfitt líka, í sumum tilvikum fylgir þessu skömm. Fólk gerir það ekki að ganni sínu að taka smálán. Þetta er gert út úr neyð. Sumir gera þetta útfrá fátækt. Fólk hefur ekki til hnífs og skeiðar. Í öðrum tilvikum eru veikindi, sjúkdómar á bak við. Í mörgum tilvikum fíkni­sjúkdómar eða andleg veikindi.”

„Þeir meðbræður okkar í samfélaginu sem við ættum helst að halda hlífiskyldi yfir en erum að bregðast í þessum málum. Það er ótrúlegt af hvað miklu offorsi Almenn innheimta er að beita sér í innheimtu fyrir þessi fyrirtæki.”

Samfélags ábyrgð að stöðva þessa starfsemi

Almenn innheimta sækir þjónustu til Spari­sjóðs stranda­manna. Sjóðurinn útbýr greiðslu­seðla til innheimtu fyrir smálána­fyrirtækin. „Við erum búnir að leita eftir skýrum svörum frá Spari­sjóði stranda­manna,” segir Breki og bætir við; „Hvort þeir ætli að heimila þetta áfram. Við höfum bara fengið loðin svör frá þeim um að þeir ætli ekki að heimila ólöglega starfsemi en ekki hvort að þeir haldi áfram að þjónusta þetta fyrirtæki.”

Breki segir að með því að lýta undan, eru ýmis fyrirtæki að aðstoða við þessi smálán. „Mér finnst það eitthvað sem samfélags­lega ábyrg fyrir­tækja ættu að skoða virkilega vel, hvort þeir vilji standa að því að aðstoða þessa starfsemi sem er bara skaðleg og í rauninni ólögleg.”

„Við erum langflest sammála um að þessi starfsemi eigi ekki að líðast.” Hann segir allt vera til staðar til að stöðva þessa starfsemi. „Það eru komin fordæmi, kominn dómur, kominn úrskurður neytenda­stofu. Vilji löggafans er skýr. Öll lán sem bera meira en 50% vexti eru ólögleg. Samt fær þetta að viðgangast.”

„Við þurfum að hugsa það vel og vandlega sem samfélag, hvar við erum stödd þegar við leyfum þessu að grasserast, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár án þess að sporna við.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim