Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Alvarleg staða hjá Barnavernd Reykjavíkur og lögum ekki alltaf fylgt

Sérstök athygli er vakin á veru­lega úreltu mála­skrár­kerfi

Börn að leik
Börn að leik Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið

Nið­ur­stöður úttektar á fyr­ir­komu­lagi fóst­ur­mála hjá Barna­vernd Reykja­víkur benda til þess að mikið og við­var­andi álag á starfs­fólk hafi meðal ann­ars orðið til þess að lögum og verk­lagi sé ekki alltaf fylgt við vistun barna. Þá séu dæmi um að eft­ir­liti sé ekki sinnt sam­kvæmt lögum og að börn fái ekki þjón­ustu við hæfi.

Nið­ur­stöð­urnar voru kynntar á fundi vel­ferð­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar sem fór fram í fyrra­dag. Jafn­framt var lagt fram minn­is­blað frá 19. októ­ber um úttekt­ina, til­lögur til úrbóta og stöðu þeirra. Anna Kristín Newton og María Rún Bjarna­dóttir sáu um úttek­ina en þær eru báðar sál­fræð­ingar.

Vel­ferð­ar­ráð segir Barna­vernd Reykja­víkur almennt fá góða umsögn hag­að­ila en nið­ur­stöður úttekt­ar­innar séu engu að síður alvar­legar og kalli á mark­viss við­brögð.

Úrelt kerfi torveldar yfirsýn

Í bókun ráðs­ins kemur fram að þótt stöðu­gildum hjá Barna­vernd Reykja­víkur hafi fjölgað und­an­farin ár sé ljóst að frek­ari aðgerða sé þörf. Sérstök athygli er vakin á veru­lega úreltu mála­skrár­kerfi sem sagt er tor­velda yfir­sýn, eft­ir­fylgni og sam­ræmt verk­lag auk þess að auka álag á starfs­fólk.

Ráðið telur brýnt að fjár­fest verði í nútíma­legu upp­lýs­inga­kerfi sem ein­faldi vinnu starfs­fólks og tryggi betri yfir­sýn yfir mál barna.

Jafn­framt þurfi að styrkja eft­ir­fylgni með aðbún­aði, öryggi og líðan fóst­ur­barna og tryggja að sjón­ar­mið barn­anna séu skráð. Þá þurfi að inn­leiða skýr gæða­við­mið og bæta stuðn­ing við ung­menni þegar fóstri lýkur.

Vel­ferð­ar­ráð bendir þó á að Reykja­vík­ur­borg hafi ekki for­ræði yfir öllum þeim úrbótum sem taldar eru nauð­syn­legar. Skortur á fóstur­úr­ræðum, íþyngj­andi reglu­verk og stjórn­sýslu­legar hindr­anir kalli einnig á aðkomu rík­is­ins.

Ráðið hyggst bregð­ast við nið­ur­stöðum úttekt­ar­innar með skipu­lögðum aðgerðum á næstu miss­erum. Reykja­vík­ur­borg muni ráð­ast í þær úrbætur sem heyra undir borg­ina og jafn­framt þrýsta á ríkið um breyt­ingar á þeim þáttum sem eru á þess for­ræði.

Á fund­inum fyrir hönd flokk­anna í borg­ar­stjórn sátu Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir, Ásta Þórdís Skjald­dal Guð­jóns­dóttir, Þor­valdur Dan­í­els­son, Róbert Ragn­ars­son, Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir, Helgi Áss Grét­ars­son og Þor­valdur Davíð Krist­jáns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum