Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

„Er einokun Háskóla Íslands eðlileg þegar litið er til fjölþjóðasamfélagsins?“

Helga Dögg Sverrisdóttir.
Helga Dögg Sverr­is­dóttir.

Er ekki ein­okun Há­skóla Ís­lands ó­við­unandi? er yfir­skrift greinar eftir Helgu Dögg Sverr­is­dóttur, sem er sjúkra­liði og grunn­skóla­kenn­ari.

Þar segir:

„Af og til tekur fram­bjóð­andi þessa umræðu við fólk, Íslend­inga, sem koma að utan eftir nám. Það sem margir þeirra eiga sam­merkt er að þeir fá menntun sína ekki metna hér á landi. Hér er um sál­fræð­inga að ræða, félags­ráð­gjafa og hjúkr­un­ar­fræð­inga svo fáar stéttir séu nefndar. For­kast­an­leg­ast til­fellið er þegar barna- og ung­linga­sál­fræð­ingar, sem þjóðin þarf á að halda, fá ekki námið sitt metið frá útlöndum. Á meðan brenna Stuðlar!

Hvað veldur, er það hroki?

Helga tekur dæmi „af doktor í barna-og ung­linga­sál­fræði. Stundar sál­fræði­nám í virtum háskóla í Banda­ríkj­unum. Þar í landi þurfa nemar að skila 3000 verk­legum tímum, hér á landi nær það ekki þriðj­ungi. Þegar heim kemur þarf að sækja um starfs­leyfi hjá Land­lækni sem sér um útgáfu leyf­is­bréfa. Íslensku­kunn­átta er skil­yrði fyrir starfs­leyfi. Gef ein­stak­lingi orðið sem hefur orðið fyrir barð­inu á þessu og Land­læknir þvær hendur sínar:

„Vanda­málið hjá mér sner­ist meira um það að land­lækn­is­emb­ættið, sem gefur út leyf­is­bréfin, gat ekki svarað því hvaða áfanga ég þyrfti að hafa til þess að fá námið metið. Þegar sál­fræði­deild HÍ svar­aði loks­ins (eftir að ég fór í útvarpið) sögðu þeir mér að kíkja á náms­skránna á net­inu. Enginn gat gefið mér gát­lista yfir það hvað þyrfti til. HÍ er þar að auki ekki eini skól­inn sem útskrifar sál­fræð­inga en mað­ur­inn benti mér ekki á, að ég gæti t.d. skoðað hvað HR kennir ef það væri eitt­hvað sem pass­aði ekki.“

Þrátt fyrir starfs­leyfi í Banda­ríkj­unum hafnar Land­læknir að gefa úr starfs­leyfi nema með blessun HÍ.“

Þá spyr Helga:

„Hefur HÍ eign­ar­hald á menntun í land­inu?“

Heldur áfram:

„Þessi krafa á fólk, sem kemur með menntun úr háskólum erlendis frá, útheimtir vinnu og kostnað fyrir umsækj­anda sem í þessu til­felli gaf kerf­inu putt­ann ef svo má orða kom­ast. Þar misstum við einn sér­mennt­aðan barna- og ung­linga­sál­fræð­ing úr landi. Hve margir hafa gert slíkt hið sama? Hversu margir vel mennt­aðir ein­stak­lingar vinna við annað en fagið sitt vegna regln­anna?“

Hún ljær máls á því að í spjalli sínu „við hjúkr­un­ar­fræð­ing kom fram að danskir hjúkr­un­ar­fræð­ingar fá ekki að starfa sem slíkir því Háskóli Íslands metur að þá vanti eitt­hvað upp á fræðin til að vera jafn­fætis íslenskum hjúkr­un­ar­fræð­ingum. Danmörk, nærri 10 millj­óna þjóð, menntar ekki nógu góða hjúkr­un­ar­fræð­inga fyrir Íslend­inga!

Það verður að spyrja hvað veldur. Mennta millj­óna­þjóðir sitt fólk eitt­hvað öðru­vísi en Háskóli Íslands gerir? Er ein­okun Háskóla Íslands eðli­leg þegar litið er til fjöl­þjóða­sam­fé­lags­ins?“

Helga telur að við þurfum að taka okkur á hér á Íslandi:

„Eiga stjórn­mála­menn ekki að breyta lögum þannig að Íslend­ingum og útlend­ingum sem læra í útlöndum, annað en það sem er HÍ þókn­an­legt, séu metnir að verð­leikum. Segi eins og sá sem varð fyrir barð­inu á þessum úreldum reglum:

„Af hverju má sam­fé­lagið ekki vera fjöl­breytt­ara? Af hverju finnst ráðu­neyt­inu það eðli­legt að allir séu þving­aðir í sama þrönga HÍ kass­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn