Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Björn Leví útskýrir ósvinnu Áslaugar Örnu: „Svona virkar hinn pólitíski leikur“

Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Allir eru að tala um baks­tungu Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum í fyrra­dag en þar gerir ráð­herr­ann lítið úr Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra, frammi fyrir fullum sal af kvóta­kóngum. Píratinn Björn Leví Gunn­ars­son útskýrir „upp­á­tækið“ í Facebook færslu.

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata hefur verið afar iðinn við að pönk­ast í rík­is­stjórn­inni og þá sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­flokknum, und­an­farin ár. Í nýrri Facebook-færslu útskýrir hann fyrir les­endum sínum, ástæð­una fyrir því að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir gerði lítið úr Svandísi Svav­ars­dóttur, kollega sínum í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, á fundi Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (áður LÍÚ). „Smá útskýr­ing á þessu upp­á­tæki – fyrir fólk sem hefur áhuga á því hvernig stjórn­málin virka inn­an­frá,“ byrjar Píratinn færsl­una og heldur áfram: „Eins mikið og allir geta hneyksl­ast á þessu mjög svo ósmekk­lega upp­á­tæki Áslaugar Örnu þá eru áhrifin af þessu tví­þætt.“

Áhrifin sem Björn Leví nefnir, eru eft­ir­far­andi:

1. Þetta spilar hár­ná­kvæm­lega inn til fólks sem gæti stutt Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þetta aðgreinir Sjálf­stæð­is­flokk­inn frá VG – en mikið hefur verið talað um hversu líkir íhalds­flokkar þetta eru þegar allt kemur til alls. Sjallar elska þetta útspil.

2. Þetta hjálpar Svandísi og VG að fjar­lægja sig frá Sjálf­stæð­is­flokknum. Þau fagna þessu örugg­lega ægi­lega mikið bara og kvarta ekki baun yfir því (amk innra með sér) að Áslaug Arna hafi gert þetta. Þarna geta þau bent á „sko, við erum ekk­ert eins. Við erum í alvör­unni rosa­lega ósam­mála“.

Björn Leví segir rík­is­stjórn­ina halda áfram að starfa saman næstu árin „með áfram­hald­andi skotum hvert á annað – sem mun hjálpa báðum flokkum fyrir næstu kosn­ingar að aðgreina það sem nú er límt saman. Á meðan ger­ist auð­vitað ekk­ert upp­byggi­legt.“

Segir hann enn­fremur að fólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að þessi skot munu valda ein­hverju upp­námi á rík­is­stjórn­ar­heim­il­inu, því þetta hjálpi báðum flokkum. „Svona virkar hinn póli­tíski leikur.“

Í lok færslu sinnar útskýrir Björn Leví hvernig Píratar virka:„Bónus í lokin — svona virka Píratar, að benda á hvernig póli­tíski leik­ur­inn virkar svo fólk geti betur áttað sig á því af hverju hitt og þetta er að ger­ast í póli­tík­inni sem er ann­ars ill­skilj­an­legt fyrir fólk utan­frá. Það er okkar póli­tíski „leikur“ – Að segja hlut­ina bara beint út. Þess vegna þola þau okkur ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum