Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Slösuð kona hlunnfarin af lögmanni sínum: Ómar lögmaður hirti margfalda þóknun

Ómar R. Valdimarsson
Ómar R. Valdi­mars­son Mynd: Þór Ægisson

Kona sem slasaðist leitaði til lögmanns sem hafði af henni stóran hluta bótanna. Trygginga­félagið greiddi rúmar 9,6 milljónir króna í bætur en lögmaðurinn hélt eftir rúmum þremur milljónum króna.  Úrskurðar­nefnd lögmanna kvað upp þann úrskurð 14. mars sl. að Ómari R. Valdimars­syni lögmanni bæri að endur­greiða konunni 1.859.801 krónur að meðtöldum virðis­aukaskatti að frádregnum innborgunum vegna vinnu sinnar við innheimtu slysabóta.

Trygginga­félagið greiddi 9.614.642 kr. í bætur ásamt vöxtum og innheimtu­þóknun lögmanns með virðis­aukaskatti að fjárhæð 715.874.

Samkvæmt uppgjöri milli Ómars og konunnar var lögmanns­þóknun að fjárhæð 3.112.581 kr. með vsk. sem sundur­liðast þannig að 715.874 kr. komu frá trygginga­félaginu og 2.354.669 kr. voru dregnar frá bótum slösuðu konunnar.

Konan var ósátt við uppgjörið og sendi í kjölfarið erindi til Úrskurðar­nefndar lögmanna og krafðist lækkunar á þóknuninni. Vísað var til þess að almennt væri krafist 50-75 prósent álag ofan á innheimtu­þóknun sem greidd er af trygginga­félagi. Samkvæmt því hefði þóknun í málinu átt að vera á bilinu 1-1,2 milljón. Hins vegar hafi heildar­þóknun lögmannsins numið 3.112.581 kr. sem sé um 148 prósent hærri þóknun en rótgróin venja sé um í málum sem þessum.

Úrskurðar­nefndin komst að þeirri niður­stöðu að þóknun sem Ómar áskildi sér hafi ekki verið hæfileg miðað við umfang og sætti endur­gjaldið lækkun að fjárhæð 1.252.780 krónur.

Mannlíf hafði samband við Ómar símleiðis.

„Já, sæl,“ sagði hann og sleit símtalinu áður en færi gafst að bera upp spurningar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim