Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Brynjar segir bindindismenn og óvirka vera á móti sölu áfengis: „Fíkn í áfengi er ekki vandamálið“

Brynjar Níelsson er að leita. Athugið, myndin er samsett.
Brynjar Níelsson er að leita. Athugið, myndin er sam­sett.

„For­sæt­is­ráð­herra segir að þjóðin verði að ná sátt í áfeng­is­málum. Það verður aldrei sátt um sölu áfengis. Bind­ind­is­menn eru alla jafna á móti sölu áfengis. Óvirkir fíklar er einnig mjög á móti öllum breyt­ingum á sölu áfengis nema til að banna sölu þess. Svo eru enn til botn­freðnir sós­í­alistar, sem enga ólyst hafa á áfengi, en geta bara ekki hugsað sér að afnema einka­rétt rík­is­ins á nokkru. Með þeim í liði eru nokkrir fram­sókn­ar­menn sem líta enn upp til Hriflu-Jónasar,“ segir Brynjar Níelsson aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra og fyrrum þing­maður í nýrri færslu á Facebook. Þar kemur hann sjón­ar­miðum sínum um sölu áfengis í mat­vöru­versl­unum en mikið hefur verið fjallað um málið eftir að Costco opn­aði fyrir áfeng­is­sölu til almenn­ings.

Brynjar er hlynntur enda gall­harður Sjálf­stæð­is­maður er hefur flokk­ur­inn lengi stefnt að breyt­ingum og rýmka fyrir sölu áfengis og gera aðgengi­legra. Hann les bind­ind­is­mönnum og fólki með fíkni­vanda óvægan pistill­inn og telur þá fremstu hindrun og mót­stöðu breyt­ing­anna:

„Lengi hefur verið vitað að mað­ur­inn er ekki full­kom­inn og ræður mis­vel við lífið. Mikið væri leið­in­legt ef við værum öll full­komin. Við höfum mörg til­hneig­ingu til að ánetj­ast ein­hverju sem fer ekki vel með okkur. Fíkn í áfengi er ekki eina vanda­málið. Sumir glíma við spilafíkn, kaup­fíkn eða kaupæði, tölvu­leikjafíkn sem herjar einkum á ung­menni og svo má ekki gleyma kyn­lífs­fíkn sem hefur þó til­hneig­ingu til að lag­ast með aldr­inum. Áfengið, búð­irnar spilin, tölvu­leik­irnir og kyn­hvötin er ekki söku­dólg­ur­inn heldur við sjálf.“

Hann snýr svo umræð­unni að sjálfum sér og setur sig undir sama hatt og vinstri menn, sem hann kallar gáfu­menn. Brynjar kveðjst laus við kaup­fíkn og kemur svo rétt inn á kyn­lífsiðkun sína:

„Sjálfur hef ég enga ólyst á áfengi, ekki frekar vinstri gáfu­menn. En ég er alveg bólu­settur fyrir kaup­fíkn og þjá­ist af van­líðan í hvert sinn sem Soffía dregur mig inn í búð. Ef ég væri ekki kvæntur ætti ég engin föt og klædd­ist lauf­blaði eins og Adam forðum. Þá er ég of tregur til að læra á tölvu­leiki og spila­kassa. Hef verið hóf­samur í kyn­lífsiðkun, einkum í seinni tíð.“

Brynjar kveður kvæði sínu í kross og segir að mann­eskjur þurfi almennt að bera ábyrgð á lífi sínu sjálft:
„Við vitum að alltaf munu ein­hverjir missa fót­anna og þá er mik­il­vægt að í boði sé hjálp vilji menn hana. Ef við tökum alla ábyrgð af fólki og sjúk­dómsvæðum alla vit­leysu sem við gerum þá batnar ástandið ekki.“

Hér að neðan má sjá færslu Brynjars í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas