Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Hátt í fjörutíu drepin í árás Ísraelshers á flóttamannabúðir: „Viðbjóðslegt fjöldamorð“

Ung stúlka sem særðist í árásinni.
Ung stúlka sem særð­ist í árásinni. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Palest­ínsk yfir­völd segja að minnsta kosti 36 hafi fallið í árás Ísra­els­hers á Nuseirat-flótta­manna­búð­irnar í mið­hluta Gaza í gær, þar sem Ísraelar halda áfram að gera hrotta­fengnar árásir víðs vegar um Gaza.

Rík­is­fjöl­miðla­skrif­stofan á Gaza sagði árás­ina í gær hafa verið „villi­manns­leg og við­bjóðs­legt fjöldamorð“ og benti á að flestir þeirra sem létu lífið væru úr al-Sheikh Ali fjöl­skyld­unni. „[Ísra­elski] her­náms­her­inn vissi að þetta er blokk með mörgum íbúðum sem hýsa tugi óbreyttra borg­ara, barna, kvenna og flótta­fólks,“ sagði skrif­stofan.

Eyði­legg­ingin eftir árás­ina er svaka­leg.

Læknar sögðu Reuters frétta­stof­unni að eldur eftir loft­árás Ísra­els­hers hafi kviknað í póst­húsi í Nuseirat þar sem palest­ínskar fjöl­skyldur hafa verið á flótta, sem og í nær­liggj­andi hús. Ljós­myndir frá vett­vangi sýna ung börn þakin ryki og blóði í rústum hrundrar bygg­ingar.

Ungri stúlku komið til bjargar.

Á Gaza er ekki óal­gengt að loft­árásir drepi fjölda með­lima sömu fjöl­skyldu, þar sem stríð Ísraels heldur áfram inn í sitt annað ár.

Frá og með októ­ber 2024, eins árs afmæli stríðs­ins, höfðu árásir Ísraela útrýmt algjör­lega að minnsta kosti 902 heilum fjöl­skyldum á svæð­inu, að sögn fjöl­miðla­skrif­stofu rík­is­stjórn­ar­innar á Gaza.

Í gegnum stríðið hafa ísra­elskir her­menn ráð­ist á mann­virki og bygg­ingar sem skýla fjöl­skyldum á flótta, sem halda því oft fram, með litlum sem engum sönn­un­ar­gögnum, að þær séu not­aðar sem aðgerða­stöðvar fyrir Hamas-sam­tökin. Ísraelsk yfir­völd hafa enn ekki tjáð sig um árás gær­dags­ins í Nuseirat.

Þá hafa heil­brigð­is­stofn­anir, blaða­menn og mann­úð­ar­starfs­menn einnig greint frá því að ísra­elskir her­menn hafi sér­stak­lega beint árásum sínum að þeim frá því átökin hófust í októ­ber 2023, þegar Hamas gerði mann­skæða árás á suð­ur­hluta Ísraels sem drap um 1.100 manns, flestir óbreyttir borg­arar.

Á þeim tíma sem lið­inn er síðan hafa árásir Ísraela kostað meira en 44.800 Palest­ínu­menn lífið á Gaza, meira en helm­ingur þeirra konur og börn, þó talan sé almennt talin mun hærri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Heimur

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Charles Paxton segir fjölda tilkynninga sveiflast milli ára. Dýr, bátsöldur, vindur og gróður geti skýrt það sem fólk telur sig sjá.
Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum