Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Vísbendingar um nýjan fentanyl-faraldur – Lyfjatengdum andlátum hefur fjölgað um 47% hjá 30-44 ára

Hin ýmsu form fentanyls
Hin ýmsu form fent­anyls Mynd: biotage.com

Vísbendingar eru um að fentanyl faraldur sé hafinn á Íslandi. Hvergi á Norður­löndunum er verslað jafn mikið af ópíóðíum en á Íslandi. Í aldurs­hópnum 30-44 ára hafa lyfja­tengd andlát aukist um 47% á milli 2011-2015 og 2016-2020.

Sjá einnig: Fentanyl faraldur á Íslandi segir sprautu­fíkill: „Fentanyl er svakalegasti morðinginn á götunni“

Áður en lengra er haldið er best að skoða hvað ópíóíða-lyf eru. Eftir­farandi texti er úr Talna­brunni, frétta­bréfi Land­læknis­embættisins um heilbrigðis­upplýsingar, sem kom út í mars á þessu ári.

Ópíóíðar falla í flokk ávana- og fíkni­lyfja en langtíma notkun þeirra getur valdið því að notandinn verður háður lyfjunum vegna vana­bindingar eða líkamlegrar fíknar. Auk þess að vera mjög ávana­bindandi, geta of stórir skammtar ópíóíða verið lífs­hættulegir vegna bælandi áhrifa sem þeir hafa á þann hluta heilans sem stýrir öndun. Of stórir skammtar geta því valdið öndunar­stoppi og dauða. 

Samkvæmt upplýsingum frá Lyfja­stofnun sem Mannlíf fékk í hendurnar, er árleg sala fentanyl-lyfja minni árin 2017-2021 en árið 2016 þegar salan náði hámarki en nú má þó merkja talsverða aukningu í sölunni eins og sjá má á myndinni fyrir neðan:

Grafið sýnir fjölda skil­greindra dag­skammta sem seldir eru frá lyfja­heild­sölum á dag fyrir hverja 1.000 íbúa. Graf: Lyfja­stofnun.

Eins og sést á grafinu er salan orðin álíka mikil nú og hún var árið 2013 en hún hefur hækkað um rúm 10% milli áranna 2020 og 2021.

Ef bornar eru saman sölutölur á almennum ópíóíðum á Íslandi, við sölutölur á Norður­löndunum, sést að Ísland gnæfir yfir frændur sínar og frænkur. Þó að kaup á almennum ópíóíðum hafi fækkað töluvert á undan­förnum árum á Ísland enn lagt í land með að ná öðrum Norður­löndum.

Ísland ber af í ópíóíða­notkun á Norð­ur­lönd­unum. Graf: Lyfja­stofnun

Eins og sést á grafinu sést að salan minnkaði milli áranna 2019 og 2020 en ef litið er á nýlegri tölur má sjá að fjölgun hefur orðið aftur á sölu ópíóíðum á Íslandi.

Talsverð aukn­ing hefur orðið á sölu ópíóíð-lyfja á Íslandi sam­kvæmt nýj­ustu tölum.

Líkt og sést á myndinni hér fyrir ofan má sjá að kvenkyns kaupendur lyfjanna eru fleiri en karlkyns kaupendur. Í frétta­blaði Land­læknis­embættisins sem minnst er á að ofan segir að eftir samdrátt síðustu ára hafi nú orðið lítilsháttar fjölgun einstaklinga sem leystu út ópíóíð-lyf eða frá 157/1.000 íbúa 2020 í 166/1.000 íbúa 2021. Þetta samsvarar því að ríflega 61 þúsund einstaklingar hafi leyst út að minnsta kosti eina ávísun á ópíóíða á árinu 2021 saman­borið við ríflega 57 þúsund árið áður.  

Mannlíf hafði samband við lögregluna á höfuð­borgar­svæðinu og spurði hana út í lyfja­tengd dauðsföll á Íslandi. Sagði fulltrúinn að fullsnemmt sé að tala um fjölgun er segir þó að lögreglan hafi fengið nokkur slík mál inn á borð þeirra að undan­förnu.

„Hvað varðar lyfja­tengd dauðsföll á Íslandi það sem af er ári 2022, myndi ég vilja segja að enn sé of snemmt að tala um fjölgun – við sjáum reglulega sveiflur í þessum fjölda sem stundum jafnar sig svo út með tímanum. Þá liggja niður­stöður krufninga ekki fyrir en það getur tekið allt að hálfu ári að fá krufningar­skýrslur í málunum. Hins vegar er rétt að við höfum á stuttum tíma fengið nokkur slík mál inn á borð til okkar án þess að geta farið frekar út í þau mál.“

Mannlíf spurði fulltrúann einnig að sölu og dreifingu á fentanyl og skyldum lyfjum, á svarta markaðnum.

„Varðandi sölu og dreifingu þá er og hefur verið talsvert um sölu á lyfjum. Þetta er ýmist lyf sem flutt eru inn til landsins sem og lyf sem einstaklingar eru að selja eftir að hafa orðið sér út um þessi lyf m.a. hjá einstaklingum sem hafa fengið þessum lyfjum ávísað á sig. Það er allur gangur á því og stundum á það ekki við.“

Mannlíf fékk tölfræði­sérfræðing til þess að rýna í tölur frá Land­læknis­embættinu er snúa að lyfja­tengd andlát á Íslandi frá árinu 2011.

Lyfja­tengd dán­ar­tíðni Gögn unnir úr tölum Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins

Þetta eru lyfja­tengd andlát á 100.000 íbúa niður á aldursbil. Tölfræðingurinn tók meðaltal áranna 2011-2015 og 2016-2020. Þar sést að lyfja­tengd andlát hafa aukist um 80% í aldurs­hópnum 18-29 ára , úr 6,7 í 12,1 andlát á hverja 100.000 íbúa. Breytingin á milli áranna 2020 og 2019 er þó minnkun um 60% á milli ára í sama aldurs­hópi, úr 15,4 í 6,2 andlát.

Í aldurs­hópnum 30-44 ára hafa lyfja­tengd andlát aukist um 47% á milli 2011-2015 og 2016-2020, úr 11,9 í 17,5 andlát á hverja 100.000 íbúa og aukist um 29% á milli 2019 til 2020, úr 15,8 í 20,4 andlát á hverja 100.000 íbúa.

Áhugavert verður að skoða tölur varðandi lyfja­tengd andlát fyrir árið 2021 en þær eru ekki komnar frá Land­lækna­embættinu. Ef marka má fjölgunina á sölu ópíóíða-lyfjum síðasta ár, má búast við fjölgun á lyfja­tengdum andlátum.

Mannlíf mun á næstunni rannsaka svarta markaðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi