Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Segir vinstri halla á RÚV vera bull

Anna Krist­jáns­dóttir hefur áhyggjur af stöðu fjöl­miðla á Íslandi

Anna greinir ástandið í íslensku fjölmiðlaumhverfi
Anna greinir ástandið í íslensku fjöl­miðlaum­hverfi Telur starfs­fólk RÚV reyna standa sig vel í vinnu.

Anna Krist­jáns­dóttir vél­stjóri blæs á sögu­sagnir að það sé vinstri halli á frétta­stofu RÚV og segir að fólk ætti frekar að gleðj­ast yfir til­vist þess frekar en lasta fyrir litlar sakir.

„Í hvert sinn sem Rík­is­út­varpið ber á góma vegna ein­hverra frétta hvar hægt er að tjá sig um frétt­ina, kemur ávallt ein­hver van­stilltur hægri­maður og krefst þess að það verði lagt niður með allskyns furðu­legum orð­send­ingum sem venju­lega segir miklu meira um þann sem tjáir sig en um RÚV. Oft eru þetta vær­ingar um vinstri­halla á frétta­stof­unni,“ skrifar Anna á Facebook.

Hún tekur þó fram að hún hafi ekki alltaf verið sátt með RÚV og þá sér­stak­lega í sam­hengi við nátt­úru­ham­farir og nefnir Suð­ur­lands­skjálft­ann árið 2000 sem dæmi. Hún heldur þó að frétta­menn reyni sitt best við að sigla milli öfganna í stjórn­málum.

„Bogi Ágústs­son frétta­maður emer­ítus og upp­á­halds­frétta­maður okkar flestra Íslend­inga var að eigin sögn boð­inn til að leysa af á frétta­stofu sjón­varps vegna þess að hann hafði verið virkur í Vöku, félagi lýð­ræð­is­sinn­aðra stúd­enta (hægri­s­inn­aðra stúd­enta), en sem betur fer örl­aði aldrei á per­sónu­legum skoð­unum hans í póli­tík alla þessa ára­tugi sem hann var á frétta­stof­unni. Þá hafa margir sem hafa verið taldir hægra megin við miðju starfað hjá Rík­is­út­varp­inu, Hallur Hallsson var frétta­maður á RÚV, Ingvi Hrafn Jónsson, Sigmar Guð­munds­son, Einar Þor­steins­son og margir aðrir. Á móti má nefna Sigurð G. Tómasson sem var að eigin sögn bolað í burtu frá RÚV vegna skoð­ana sinna og ekki má gleyma Birnu vin­konu minni Þórð­ar­dóttur sem sótti marg­sinnis um störf á frétta­stof­unni, en var ávallt hafnað,“ heldur Anna áfram.

Hægri halli, ekki vinstri

„Að tala um vinstri­halla á frétta­stofu RÚV er bull, Það væri nær að tala um hægri­halla, en höfum samt í huga að RÚV er sam­eign okkar allra og ekki síst núna þegar Morg­un­blaðið er orðið nán­ast alfarið í eigu útgerð­ar­innar og fram­kvæmda­stýra SFS er komin í stjórn Sýnar sem á Visi.is og Bylgjuna auk ex Stöðvar 2.“

Þá nefnir hún Elon Musk og for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum þar sem auð­kýf­ing­ur­inn dældi pen­ingum í kosn­inga­bar­áttu Donald Trump. Anna spyr hvort við viljum við­líka ástand á Íslandi þegar stóru einka­reknu fjöl­miðl­arnir eru komnir í eigu útgerð­ar­innar.

„Sem betur fer höfum við Rík­is­út­varpið og eigum að efla það og treysta þó að vissu­lega getum við verið óánægð með eitt og annað og ég búin að fá mig fullsadda af „Með allt á hreinu“,“ skrifar hún að lokum um ástandið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Maðurinn segist hafa verið beittur handrukkun og krafinn um að flytja fíkniefni til Íslands. Faðir hans fylgdi honum af ótta við hefndaraðgerðir.
Pólitík

Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

Heimur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Fólk

Hlýlegt heim­ili við Efri Hól bíður nýrra eig­enda

Húsið var reist árið 1916

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu