Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vendipunktur í Golfstraumnum „sennilega skammt undan“

„Hvað getum við gert til að draga úr eða koma í veg fyrir stöðvun AMOC hringrás­ar­innar?“

Haraldur Sigurðsson
Haraldur Sig­urðs­son Pró­fess­or­inn hefur áhyggjur af þróun mála Mynd: Graduate School of Oceanography

Haraldur Sig­urðs­son, jarð- og jarð­efna­fræð­ingur segir nýjar vís­inda­rann­sóknir benda til þess að hringrásin í Norður-Atl­ants­hafi, svo­nefnd AMOC, sé að nálg­ast vendi­punkt og að afleið­ing­arnar gætu orðið djúp­stæðar fyrir lofts­lag og líf­ríki á norð­ur­slóðum.

Í færslu sem Haraldur birti á Facebook segir hann að margir vís­inda­menn telji að dregið sé úr hring­straumnum, sem flytur gíf­ur­legt magn af hita­orku til norð­urs og hefur afger­andi áhrif á veð­ur­far á norð­ur­hveli jarðar. „Margir telja að nú sé að draga úr straumnum, sem mun valda djúptækum lofts­lags­breyt­ingum á norð­ur­slóðum, bæði í haf­inu og á landi,“ skrifar hann.

Haraldur bendir á að hringrásinni sé haldið gang­andi vegna mis­mun­andi seltu og hita í haf­inu, en að enn blasi við stórar spurn­ingar. „(1) Hvenær hættir hringrásin? (2) Hvaða afleið­ingar hefur það á lofts­lag í Norður-Evrópu og Græn­landi? (3) Hvaða áhrif hefur það á líf­ríki í haf­inu og á fisk­stofna og afla?“ spyr hann og bætir við fjórðu spurn­ingu: „(4) Hvað getum við gert til að draga úr eða koma í veg fyrir stöðvun AMOC hringrás­ar­innar?“

Svarið sé aug­ljóst að mati Haraldar: „Að draga úr losun koltví­oxíðs og ann­arra efna sem valda hnatt­rænni hlýnun. Senni­lega er það því miður tapað mál, ef dæma skal út frá stefnum og atgerðum stór­veld­anna.“

Hann vísar til nýrra rann­sókna Hol­lend­ings­ins van Westen og félaga (2025) í Utrecht, sem sýni að „vendipúnkt­ur­inn í hringrásinni er senni­lega skammt undan.“

Haraldur birtir einnig tvær myndir úr rann­sóknum sem sýna ann­ars vegar líkön af hita­breyt­ingum í Norður-Atl­ants­hafi ef eða þegar AMOC hringrásin stöðvast, og hins vegar raun­mæl­ingar gervi­hnatta frá 1993 til 2021 sem sýni svip­aða þróun

„Mynd­irnar sýna svip­aða þróun, bæði hvað varðar Golfstraum­inn og kólnun Norður-Atl­ants­hafs­ins,“ segir hann og veltir því fyrir sér hvort „Þýðir að AMOC straum­ur­inn sé þegar byrj­aður að slaka á?“

Að lokum bendir Haraldur á að hringrásin muni ekki stöðvast á einni nóttu, heldur verði um hæg­fara breyt­ingar að ræða: „Talið er að AMOC straum­ur­inn muni ekki hverfa í einum hvelli, heldur muni það taka 50 til 100 ár að straum­ur­inn dvínar smátt og smátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas