Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Blaðamannafélag Íslands: „Óverjandi að lögreglan kalli blaðamenn til yfirheyrslu“

Mannlíf fjallaði í dag um mál þar sem þrír blaðamenn hafa verið boðaðir í yfirheyrslu í næstu viku hjá rannsóknar­lögreglu­manni Lögreglunnar á Norður­landi eystra. Þetta eru þeir Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, Aðalsteinn Kjartansson, blaða­maður á Stundinni og Arnar Þór Ingólfsson, blaða­maður á Kjarnanum. Þremenningarnir hafa réttar­stöðu sakbornings í rannsókn á meintum brotum gegn friðhelgi einkalífs með umfjöllun sinni um „skæruliða­deild“ Samherja. 

Í fyrravor voru birtar fréttir um samskipti fólks sem tengdist Samherja með einhverjum hætti og tilraunir þeirra til að hafa áhrif á umræðu um fyrir­tækið í fjöl­miðlum. Hópurinn kallaði sig „skæruliða­deildina“ og samanstóð meðal annars af Örnu Bryndísi McClure, yfir­lögfræðingi Samherja, Þorbirni Þórðar­syni, almanna­tengsla­ráðgjafa fyrir­tækisins, Páli Steingríms­syni skip­stjóra og Jóni Óttari Ólafssyni, ráðgjafa og fyrr­verandi rannsóknar­lögreglu­manni. Ekki hefur komið fram á hvaða gögnum umfjöllunin var byggð. Fullyrt var í fyrravor að síma Páls Steingríms­sonar hefði verið stolið og Garðar Gíslason, lögmaður Samherja, sagði að þjófnaðurinn hefði verið kærður til lögreglu. Málið nú gegn blaða­mönnunum þremur byggir á kæru Páls Steingríms­sonar. 

Alvarlegt mál

Þórður Snær segir í samtali við Frétta­stofu RÚV að honum hafi komið mjög á óvart að fá símtal fyrir um tveimur tímum þar sem hann var boðaður í yfirheyrslu vegna gruns um brot gegn friðhelgi einkalífs. Hann furðar sig á því að blaðamenn sæti lögreglu­rannsókn fyrir að hafa fengið gögn og skrifað fréttir upp úr þeim. Það sé alvarlegt mál.

Þórður Snær segir ljóst af viðbrögðum við fréttum Kjarnans og Stundarinnar um „skæruliða­deildina“ að umfjöllunin hafi átt fullt erindi við almenning. Þingmenn, ráðherrar og ýmis hagsmuna­samtök, þar á meðal í sjávar­útvegi hafi brugðist hart við þeim upplýsingum sem komu fram í fréttunum og hafi fordæmt vinnu­brögð Samherja. „Það er löngu búið að eyða öllum vafa um að þetta hafi átt erindi við almenning,“ segir Þórður Snær. „Það er alvarlegt og stórmál að ráðist sé gegn rannsóknar­blaðamönnum fyrir það eitt að segja satt og rétt frá,“ segir Þórður Snær.

Gögn sem áttu erindi við almenning

Kjarninn stendur við sína umfjöllun um „skæruliða­deildina“, segir Þórður Snær. „Okkar umfjöllun byggir á gögnum. Við fórum yfir gögnin og skrifuðum upp úr þeim hluta sem við töldum eiga erindi við almenning,“ segir Þórður Snær. Og bætir við að enginn hafi véfengt fréttirnar. Þá hafi enginn þeirra sem átti í þeim samskiptum, sem eru grunnurinn að fréttunum, haft samband og sagt að ekki væri rétt eftir haft. Enginn þeirra gaf kost á viðtali.

Snýst um hlutverk blaðamanna í lýðræðissamfélagi

„Þetta er risastórt mál og snertir miklu fleiri en blaða­mennina sem skrifuðu fréttirnar. Þetta snýst um hvernig við skilgreinum rétt blaða­manna til að þjóna sínu hlutverki í lýðræðis­samfélagi,“ segir Þórður Snær.

Norð­lenskur rannsóknar­lögreglu­maður kemur til Reykja­víkur í næstu viku til að yfirheyra Arnar og Aðalstein. Þórður verður yfir­heyrður viku síðar.

Tilkynning frá Blaðamannafélagi Íslands

„Varðandi ákvörðun lögreglunnar á Norður­landi að kalla þrjá blaðamenn til yfirheyrslu vegna gruns um brot gegn friðhelgi einka­lífsins í tengslum við frétta­flutning um skrímsla­deild Samherja hef ég þetta að segja sem formaður Blaðamanna­félags Íslands:

Á þessum tíma­punkti er ekki ljóst nákvæmlega um hvað blaða­mennirnir þrír, Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni, Arnar Þór Ingólfsson, blaða­maður Kjarnans, og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hafa unnið sér til saka til þess að verðskulda stöðu sakbornings við rannsókn lögreglunnar á Norður­landi.

Þeim hefur verið sagt að þeir séu grunaðir um brot gegn friðhelgi einka­lífsins með skrifum á fréttum unnum upp úr gögnum sem sýndu samskipti fólks tengdu Samherja, sem kallaði sig skrímsla­deild. Enginn hefur véfengt þessar fréttir og Samherji hefur síðan beðist afsökunar á því framferði sem þar var lýst.

Það er óskiljanlegt og í raun mjög alvarlegt að lögreglan á Norður­landi hafi ákveðið að kalla þrjá blaðamenn til yfirheyrslu vegna þess eins að þeir skrifuðu fréttir upp úr gögnum sem þeir höfðu undir höndum. Það sé grund­völlur starfs blaða­manna að vinna úr gögnum sem þeim berast. Lögreglan kallar hér blaðamenn til yfirheyrslu með réttar­stöðu grunaðs um að hafa brotið gegn friðhelgi einka­lífsins. Hvenær sem gögn eru þess eðlis að þau gætu talist sem brot gegn friðhelgi einka­lífsins þarf blaða­maður að meta þau með tilliti til almannahags­muna og meta hvort vegi þyngra, friðhelgi einka­lífsins eða almannahags­munir.

Þegar almannahags­munir vega þyngra er það aldrei spurning að slík gögn eigi að nota til grund­vallar fréttum, sama hvernig gögnin eru fengin. Alþjóða­stofnanir hafa lagt á það grundvallar­áherslu að gætt sé fyllstu varkárni þegar blaðamenn eru rann­sakaðir. Blaðamenn hafa, samkvæmt dómum Mann­réttinda­dómstólsins, fullan rétt til og ber í raun skylda til þess að vernda heimildar­menn sína, hvort sem upplýsingar sem um ræðir eru fengnar með lögmætum eða ólögmætum hætti.

Af mála­vöxtum að dæma virðist sem það sé ætlun lögreglu að krefja blaðamenn um að gefa upp heimildar­menn sína. Það er beinlínis frum­skylda blaða­manna að standa vörð um heimildar­menn sína, enda er kveðið á um slíkt í lögum og að um það hafi fallið margir dómar fallið. Að auki eru vart dæmi um það á síðustu árum eða áratugum að blaða­maður sé kallaður til yfirheyrslu þar sem hann er krafinn um að veita lögreglu upplýsingar um heimildar­menn sína, endar þykir flestum slíkt fráleit hugmynd og margir áratugir eru síðan slíkt mál fór síðast fyrir dómstóla.

Það sem er einna alvarlegast í þessu máli er að lögreglan á Akureyri virðist ekki átta sig á því að öll afskipti dóms­valdsins af blaða­mönnum þurfa að vera vel rökstudd og hafa skýran tilgang og að þörfin sé rík og ganga út frá þeirri ófrávíkjanlegu megin­reglu að blaðamenn verndi heimildar­menn sína. Því er óskiljanlegt og nær óverjandi að lögreglan kalli blaðamenn til yfirheyrslu eingöngu til þess að fá þær upplýsingar frá þeim að þeir muni ekki gefa upp heimildar­menn sína. Það má beinlínis túlka sem óeðlileg afskipti lögreglu af starfi blaða­manna sem tefur þá að auki frá öðrum störfum á meðan og hefur þar af leiðandi hamlandi áhrif á störf þeirra.

Evrópu­ráðið hefur bent á að þessu til viðbótar geti afskipti lögreglu sem þessi af blaða­mönnum dregið úr vilja almennings til þess að láta blaða­mönnum í té upplýsingar, sem hafi einnig áhrif á rétta almennings til upplýsinga.

Sigríður Dögg Auðuns­dóttir, formaður BÍ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu