Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Örn Ægir er sannkallaður smáfuglahvíslari: „Þeir eru ótrúlega gáfaðir og skemmtilegir“

Þrösturinn fallegi
Þröst­ur­inn fal­legi Mynd: Örn Ægir

Örn Ægir hefur í fjöldi ára hlýjað ófáum fuglum í mesta vetrar­frostinu með því að hleypa þeim inn á heimili sitt.

Í Facebook-hópnum Fugla­fóðrun birti Örn Ægir Reynisson færslur á dögunum þar sem hann birti myndskeið sem sýna þresti sem hann hafði hleypt inn á heimli sitt í Reykjavík þegar það var hvað kaldast um jólin. Byrjaði hann á þessu árið 2018 en sá þröstur hefur komið á hverju ári síðan.

Í samtali við Mannlíf segir Örn Ægir að í byrjun hafi þetta verið 20 þrestir og nokkir starrar.

„Ég er búinn að gera þetta hérna í mörg ár en fyrst voru þetta um 20 þrestir sem eru allt árið og starrarnir hérna úr næsta nágrenni. Þetta er orðin nokkur hundruð stykki núna af báðum tegundum. Þessi sem kemur oftast í heimsókn var hér hjá mér í þrjár vikur árið 2018, tognaður á væng,“ sagði Örn en þann fugl má sjá hér fyrir neðan.

„Svo kom hann alltaf inn þegar fyrsta óveðrið kom á veturnar eins og til að minna á matinn yfir veturinn en í vetur er hann búinn að koma að minnsta kosti fjórum sinnum inn og vera í nokkra daga var hér inni yfir jólin,“ bætti hann við.

Segir Örn Ægir ennfremur að þrösturinn frá 2018 tali við hann með sérstöku látbragði:

„Hann talar við mann með látbragði og tísti svo er eins og hann finni á sér hvað maður segir við hann líka. Hann tístir alltaf á vissan hátt þegar hann kemur þá veit maður hver er á ferðinni.“

En hvernig eru smáfuglarnir svona í heildina?

„Þeir eru ótrúlega gáfaðir og skemmtilegir,“ svaraði Örn Ægir að bragði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi