Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Atli Þór tætir Björn Inga í sig: „Hér er smá umfjöllun um þennan hörundsára aumingja“

Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi Hrafns­son

Atli Þór Fanndal kallar Björn Inga Hrafns­son öllum illum nöfnum í nýlegri Facebook-færslu.

Viljinn sak­aði Atla Þór Fanndal, fram­kvæmd­ar­stjóra Íslands­deildar Transparency International, um þögg­un­ar­til­burði í grein miðl­is­ins. Atli Þór hafði skrifað athuga­semd við frétt mið­ils­ins, sem kom við kaun­inn á Birni Inga Hrafns­syni, rit­stjóra Viljans. Í frétt­inni er fjallað um ræðu  Heiðrúnar Lindar Mart­eins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, sem hún flutti á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum í Hörpu í fyrra­dag. Sakaði Atli Þór Viljann um að vera vilja­laust verk­færi í höndum SFS, ef svo má að orði kom­ast. Spurði hann hvers vegna Viljinn væri að borga undir „frétta­til­kynn­ingu“ frá SFS, að sam­tök­ing „gæti nú borgað undir eigin áróður.“ Í pistli Viljans um athuga­semd Atla Þórs er hann sak­aður um þögg­un­ar­til­burði og póli­tík. Við það er Atli þór allt annað en sáttur.

„Jæja, Viljinn enn einu sinni búinn að skrifa eitt­hvað froðu­fellandi bull um mig. Hann greyið Bingi getur ekki – gjör­sam­lega getur ekki – andað með nef­inu þegar kemur að mér.“ Atli Þór kall­aði svo pistil Björns Inga „osta­sokka­fýlu­púkapistil“. Segir hann í Facebook-færsl­unni að Björn Ingi sé „hör­unds­sár og aumur maður“ sem skrifi „reiðipistil“ um að Atli Þór sé að reyna að þagga niður „þennan fjand­ans miðil.“ Bætti hann við: „Jesús minn… við skulum hafa það alveg á hreinu að það er engin til­raun til þögg­unar að spyrja hvers vegna mið­ill­inn borgar ekki undir dreif­ingu á sínu besta efni.“ Því næst rifjar Atli Þór upp gömul hneyksl­is­mál tengdum Birni Inga: „Og já talandi um þöggun þá rústaði þessi maður fjölda fjöl­miðla. Hann lepp­aði fyrir millj­arða­mær­inga í yfir­töku á öfl­ugum miðlum, rak svo í kjöl­farið frétta­fólk sem andað hafði rangt á vini hans og skyldi svo eftir sig skuldir og rústir. Ég ætla ekki að taka því þegj­andi og hljóða­laust frá þessum gaur að ég stundi þöggun. Þvílíkur fáviti!“

Atli Þór skrifar svo eft­ir­far­andi athuga­semd við eigin færslu: „Hér er sem sagt athuga­semdin sem fór svona með hann Binga. Auðvitað er það síð­asta setn­ingin sem pirrar Binga en það er hægt að túlka þetta sem alvöru spurn­ingu en hann Bingi er svo veik­geðja að hann getur ekki annað en séð rautt í hvert sinn sem ég segi nokkuð. Sami maður krefst þess að við sem sam­fé­lag horfum fram­hjá öllum hans skemmd­ar­verkum, brestum, fram­komu við konur og þrotum nú þegar hann gengur með guði án alka­hóls. Sumt breyt­ist aldrei. Þessi maður er sami fávit­inn og áður.“

Athuga­semdin sem fór fyrir brjóstið á Birni Inga

Og Atli Þór var ekki hættur heldur skrif­aði hann aðra athuga­semd en þar kallar hann Björn Inga „hör­undsáran aum­ingja.“:

„Og fyrir þá sem eru alveg að drep­ast úr leið­indum þá er hér smá umfjöllun um þennan hör­undsára aum­ingja sem sakar mig um þöggun: http://www.thorfanndal.com/…/nyr-eigandi-dv-komid-vida…/“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum