Elsta kona Íslands, Þórhildur Magnúsdóttir, gerði sér lítið fyrir um helgina og skellti sér á rúntinn á fjórhjóli. Þórhildur er 104 ára en óneitanlega ung í anda. Raunar lætur hún marga sem eru hálfri öld yngri en hún líta illa út, líkt og þegar hún dansaði fram til miðnættis í brúðkaupi í sumar.
Sjá einnig: Þórhildur hefur lifað lengst allra Íslendinga: „Dansaði fram yfir miðnætti“
Þetta kemur fram á Facebook-síðunni Langlífi sem Jónas Ragnarson ritstýrir. Þar segir: „Þórhildur Magnúsdóttir sem er elsti Íslendingurinn, 104 ára og 8 mánaða, og býr á Hrafnistu á Sléttuvegi fór í sunnudagsbíltúr með ættingjum sínum í gær. Eftir að hafa fengið kaffi á Nauthóli brá hún sér á bak á fjórhjóli með Kristjáni Ómari sem er langömmubarn hennar. Þau óku einn hring á bílastæðinu og nutu ferðarinnar. Þórhildur verður 105 ára í desember en miðað við hvað hún er ungleg og hress gæti hún átt eftir að bæta mörgum árum við.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir