Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Telja þrautþjálfaðan leigumorðingja hafa drepið framkvæmdarstjórann: „Þetta er fagmaður“

Morðið á fram­kvæmd­ar­stjóra UnitedHealthCare trygg­inga­fé­lag­inu í New York í gær, ber ein­kenni „reynds, vand­aðs og þjálfaðs atvinnumorð­ingja“, að sögn fyrr­ver­andi full­trúa Alrík­is­lög­regl­unar (e. FBI).

Terry Rankhorn sagði Kay Burley á Sky News Break­fast að upp­tökur af skotárásinni í New York-borg, sem lög­reglan lítur á sem skipu­lagða skotárás, hafi verið „hroll­vekj­andi“.

Fram­kvæmda­stjóri UnitedHealthcare, Brian Thompson, 50, varð fyrir laun­sátri klukkan 6:45 að stað­ar­tíma í gær þegar hann gekk á árlega fjár­fest­a­ráð­stefnu fyr­ir­tæk­is­ins á Hilton-hót­el­inu í mið­borg Man­hattan.

Fórn­ar­lambið.

Árás­armað­ur­inn skaut marg­sinnis á Thompson og hélt áfram þrátt fyrir að byssan hafi staðið á sér í stutta stund, að sögn lög­reglu.

„Það sem þú getur ákvarðað út frá hegðun hans er að þessi mann­eskja er æfð, vön, þjálf­aður morð­ingi,“ sagði Rankhorn. „Hann hleypur ekki upp að honum eins og óreyndur, blóð­heitur við­van­ingur … þessi mann­eskja gengur rólega að honum,“ bætti hann við. „Hann gengur að skot­marki sínu. Hann dregur vopnið ​​sitt. Hann miðar var­lega og skýtur svo einu sinni á skot­markið sitt. Og þá sérðu vopnið ​​stendur á sér. Hann lagar byss­una í róleg­heitum, skýtur aftur og nær tak­marki sínu. Þetta er ekki ein­hver út úr dóp­aður morð­ingi. Þetta er fag­maður.“

Leigu­morð­ing­inn

Örygg­is­mynda­vélar náðu einnig flótta byssu­manns­ins á raf­hjóli inn í Central Park. Lög­reglan not­aði dróna, þyrlur og hunda í mik­illi leit en hann hefur ekki enn fund­ist. Lög­reglu­stjór­inn í New York-borg (NYPD), Jessica Tisch, sagði að skotárásin væri ekki til­vilj­un­ar­kennt ofbeld­is­verk, heldur „fyr­ir­fram skipu­lagða og mark­vissa árás“, þó að til­efnið sé óljóst. „Það virð­ist sem hann sé vand­virkur í notkun skot­vopna þar sem hann gat lagað hana ansi fljótt,“ bætti Joseph Kenny, yfir­lög­reglu­þjónn í NYPD við.

Lög­reglan birti myndir af mann­inum sem klædd­ist hettu­jakka og grímu sem leyndi and­liti hans að mestu.

Rankhorn deildi hug­myndum sínum um flótta manns­ins: „Hann átti greini­lega fyr­ir­fram skipu­lagða flótta­leið. Þetta er ein­hver sem kann sitt fag. Þeir eru æfðir í því. Og þetta var afar áhrifa­ríkt og skil­virkt morð. Raf­reið­hjólið er í raun átak­an­lega áhrifa­ríkt tæki í New York borg vegna umferð­ar­innar … þau geta flétt­ast inn og út úr umferð, jafn­vel þótt lög­reglu­merkt öku­tæki hafi verið að elta hann.“

Fram­kæmd­ar­stjór­inn sem var myrtur hafði fengið nýlegar líf­láts­hót­anir en hafði ekki breytt ferða­venjum sínum, að sögn eig­in­konu hans Paulette Thompson.

Rankhorn efast um að hót­an­irnar hjálpi rann­sak­endum. „Upp­skriftin að morði er: hvatn­ing, leiðir og tæki­færi. Það er alveg lík­legt að margar af þessum hót­unum hafi bara verið til­fallandi,“ sagði hann.

„Ég stór­ef­ast um að þetta sé ein­hver óánægður trygg­inga­við­skipta­vinur frá Mið-Ameríku sem flaug til New York borgar og skipu­lagði mjög fag­mann­legt, vel útfært morð. Það er gengur bara ekki upp.“

NYPD hefur boðið verð­laun allt að 1,3 millj­ónir króna fyrir upp­lýs­ingar sem leiða til hand­töku og sak­fell­ingar.

SkyNews sagði frá mál­inu en þar má einnig sjá mynd­skeiðið af morð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Heimur

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmaeil Baghaei, segir ásakanirnar tilhæfulausar.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér