Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Hæðist miskunarlaust að krónunni, Alþingi og Ásgeiri: „Krónan okkar getur flotið í kampavínsglasi“

Sirkus Íslands
Sirkus Íslands Mynd: Facebook

Ólafur Haukur Sím­on­ar­son dregur íslensku krón­una, alþing­is­menn og Seðla­banka­stjór­ann sundur og saman í háði í færslu á Facebook. Um algjört rot­högg er að ræða.

Leik­rita­skáldið og rit­höf­und­ur­inn Ólafur Haukur Sím­on­ar­son skrif­aði magn­aða færslu á Facebook í gær, sem vakið hefur verð­skuld­aða athugli. Í færsl­unni hæð­ist hann miskun­ar­laust að íslensku krón­unni og um leið þeim sem halda uppi vörnum fyrir henni. Setn­ingar eins og: „Krónan er tákn þess að við látum ekki ein­hverja evr­ópulassar­óna hafa vit fyrir okkur,“ og „Það er nú einu sinni þannig að útlend­ingar skilja ekki íslenska hag­stjórn,“ má sjá í færsl­unni, sem í raun er hálf­gert uppi­stand, á kostnað krón­unnar. „Þá getur okkar dáði Seðla­banki nefni­lega brugð­ist við, reist í snatri sirku­stjaldið á Arn­ar­hóli, og óðar birt­ist glæsi­leg fylk­ing töfra­m­anna, krafta­karla og trúða úr sölum Alþingis til að halda sýn­ingu á göldrum líkustum hæfi­leikum íslensku krón­unnar fyrir þjóð­ina sem fyllir tjaldið,“ skrifar Ólafur Haukur en við færsl­una birti hann mynd af sirku­stjaldi. Á öðrum stað í færsl­unni skrifar hann: „Hvílíkt lán fyrir þjóð­ina að eiga þetta töfra­meðal! hrópar sirkus­stjór­inn og klórar sér í eldrauðu skegg­inu. Hugsið ykkur leið­indin ef lánin ykkar stökk­breytt­ust aldrei! Hvað yrði um mann­dóm þjóð­ar­innar ef hún þyrfti bara að borga íbúð­ina sína einu sinni!“

Þessa mögn­uðu færslu má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Meiri­hluti Íslend­inga „elskar“ krón­una af því að hún er til vitnis um sjálf­stæði þjóð­ar­innar og sjálf­ræði í pen­inga­málum og hag­stjórn. Krónan er tákn þess að við látum ekki ein­hverja evr­ópulassar­óna hafa vit fyrir okkur. Það er nú einu sinni þannig að útlend­ingar skilja ekki íslenska hag­stjórn. Verst fyrir þá. Þeir hafa ein­fald­lega ekki ímynd­un­ar­afl til að skilja þá mögu­leika sem krónan veitir til að víkja sér undan þegar allt fer í hass í heims­bú­skapnum. Þá getur okkar dáði Seðla­banki nefni­lega brugð­ist við, reist í snatri sirku­stjaldið á Arn­ar­hóli, og óðar birt­ist glæsi­leg fylk­ing töfra­m­anna, krafta­karla og trúða úr sölum Alþingis til að halda sýn­ingu á göldrum líkustum hæfi­leikum íslensku krón­unnar fyrir þjóð­ina sem fyllir tjaldið.

Og það er ekki lítið sem krónan okkur kann; hún getur sprengt allar verð­bólgu­mæl­ingar eins og að drekka vatn; hún getur fellt banka­kerfi eins og spila­borg; hún getur gert launa­hækk­anir að engu á einu augna­bliki; hún getur hækkað afborg­anir lána um helm­ing með einu penna­striki; krónan okkar getur flotið í kampa­víns­glasi; en hún getur líka stein­sokkið fyr­ir­vara­laust.Hvílíkt lán fyrir þjóð­ina að eiga þetta töfra­meðal! hrópar sirkus­stjór­inn og klórar sér í eldrauðu skegg­inu. Hugsið ykkur leið­indin ef lánin ykkar stökk­breytt­ust aldrei! Hvað yrði um mann­dóm þjóð­ar­innar ef hún þyrfti bara að borga íbúð­ina sína einu sinni!Og þjóðin í sirku­stjald­inu klappar fyrir ótrú­legri frammi­stöðu íslensku krón­unnar.Hún er öruggur vitn­is­burður um sjálf­stæði okkar og heil­brigt sál­ar­líf! æpir hver upp í annan.Húrra fyrir krón­unni! Húrra!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum