Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Tíu nýir leitar- og björgunarkafarar útskrifaðir

Að lok­inni fimm vikna þjálfun hafa nem­end­urnir rétt­indi til að kafa niður á 30 metra dýpi

Köfunaræfing
Köf­unaræf­ing Kafarar æfa sig í sund­laug. Tíu nem­endur luku fimm vikna nám­skeiði í leitar- og björg­un­ar­köfun. Mynd: Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu

Tíu nem­endur útskrif­uð­ust af leitar og björg­un­ar­kaf­ara­nám­skeiði sem Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hélt í sam­starfi við Land­helg­is­gæsl­una og aðra við­bragðs­að­ila. Nám­skeið­inu lauk föstu­dag­inn 30. októ­ber eftir fimm vikna þjálfun.

Samstarf Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Land­helg­is­gæsl­unnar og rík­is­lög­reglu­stjóra um nám­skeiðið hefur staðið um ára­bil. Að þessu sinni voru engir nem­endur frá rík­is­lög­reglu­stjóra en tveir komu frá Bruna­vörnum Suð­ur­nesja. Á síð­asta nám­skeiði, sem haldið var fyrir ári, voru þrír nem­endur þaðan.

Þar sem kaf­ar­arnir sinna köfun sem hluta af laun­uðu starfi þurfa þeir atvinnu­köf­un­ar­rétt­indi sem Sam­göngu­stofa gefur út.

„Nám­skeiðið stendur yfir í fimm vikur og nem­arnir útskrif­ast með rétt­indi til að kafa niður að 30 metra dýpi með sjálf­birgan búnað,“ segir í til­kynn­ingu Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Fyrstu vik­una skipt­ist námið á milli fyr­ir­lestra og verk­efna­vinnu fyrir hádegi og æfinga í Ásvalla­laug eftir hádegi. Í annarri viku fóru fram æfingar í sjó auk tveggja próf­daga þar sem nem­endur þreyttu alls tíu próf. Síðustu þrjár vik­urnar fóru æfingar fram í aðstöðu Land­helg­is­gæsl­unnar í Helguvík.

Mikil áhersla er lögð á leita­ræf­ingar og mis­mun­andi leitar­að­ferðir sem kaf­arar þurfa að geta beitt í raun­veru­legum verk­efnum. Þá er einnig lögð áhersla á notkun afþrýstitaflna og öfl­uga sam­vinnu.

„Hópvinna er líka mjög mik­il­væg, því það á ekki að skipta máli hverjum nem­arnir eru merktir, það verða allir að leggja hönd á plóg,“ segir enn fremur.

Alls útskrif­uð­ust tíu nem­endur, fjórir frá Slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, fjórir frá Land­helg­is­gæsl­unni og tveir frá Bruna­vörnum Suð­ur­nesja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas