Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Þórunn Antonía segir Bubba hafa komið illa fram við sig: „Það verður að láta fokking reka hana“

Tónlistar­konan Þórunn Antonía Magnúsdóttir segir Bubba Morthens hafa ítrekað komið illa fram við hana á meðan þau sátu í dómara­sætum þáttarins Ísland Got Talent árið 2014. Þórunn segir frá þessu í hlaðvarps­þættinum Eigin Konur.

„Þetta var rosalega áhugavert. Þetta byrjaði sem eitthvað svona komment og svo bara urðu það að fleiri kommentum. „Þið eruð allar eins þessar gellur sem ælið upp öllu sem þið borðið“, þetta er bara sagt fyrir framan alla í miðjum tökum. Ég veit ekki hversu mikill fjöldi af ungum konum í mínum bransa – við höfum örugglega allar þjáðst af sjálfs­hatri, útlits­komplexum,“

Þórunn segist sjálf hafa glímt við átröskun og að Bubbi hafi niðurlægt sig með þessari athugasemnd.

„Maður kemur úr því að þurfa að vinna sig upp úr þessum ótrúlega brengluðu hugmyndum um hvernig maður á að líta út og maður er kominn á þennan stað í lífinu, að vera ein af fjórum stærstu stjörnunum í risa­stórum sjónvarps­þætti og er allt í einu mætt af frægasta manni Íslands sem er daginn út og daginn inn að niður­lægja mann fyrir framan alla samstarfs­félaga okkar.“

Þetta er ekki eina dæmið sem Þórunn nefnir en til að mynda segir hún Bubba hafa sagt við sig: „Þórunn þú pissaðir út fyrir, ætlarðu ekki að þurrka þetta upp, þú pissar alltaf út fyrir,“ ásamt því að kasta í hana súkkulaði­molum þrátt fyrir að hún hafi beðið hann um að hætta.

Þórunn varð ófrísk af sínu fyrsta barni á þessum tíma, þá hafi starfs­fólk þáttarins komið saman í mat og bárust barn­eignir á tal.

„Hann byrjar allt í einu bara eitthvað „Auddi, þú átt eftir að vera svo frábær pabbi, djöfull áttu eftir að vera geggjaður í þessu hlutverki“ og bla bla bla. Svo beinist athyglin að mér. „Þórunn þú átt eftir að verða alveg afleit mamma. Þú ert svo mikið fiðrildi, þú átt örugglega bara eftir að skilja barnið þitt eftir einhvers staðar“ og hélt áfram þangað til Þorgerður stoppaði hann.“

„Hvenær er þetta við hæfi? Að segja við konu á barneignar­aldri? Bara aldrei, hvað vissi hann? Kannski var ég að reyna að eignast börn, kannski var ég að reyna að eignast börn, kannski var ég búin að missa fóstur, kannski var ég ólétt – sem ég var,“

„Ég var að berjast við tárin á meðan hann var að kalla mig slæma móður.“

Þórunn ákveður að tilkynna óléttu sína og segir hún Bubba hafa brugðist við með dónaskap.

„Það eru allir bara mjög hissa og svo bætir hann við: „Við verðum að reka hana. Það verður að láta fokking reka hana. Það er ekkert „sell“ í því að hafa konu með barn á brjósti í sjón­varpinu“. Þá segi ég á móti bara: „Er eitthvað sell í því að hafa heyrnar­lausan rokkara í sjón­varpinu?“. Þorgerður skipar honum þá að setjast niður og hann fer heim stuttu eftir það. Þetta var ekki gott vinnu­umhverfi eftir þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt