Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Dæmd fyrir peningaþvætti og fjársvik

Rauf skilorð með hegðun sinni

Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sá um málið Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Héraðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt konu í 12 mánaða fangelsi fyrir peninga­þvætti og fjársvik. Tveimur mánuðum af refsingunni var frestað skilorðs­bundið til tveggja ára, að því gefnu að hún haldi almennt skilorð á þeim tíma.

Konan játaði skýlaust brot sín fyrir dómi.

Samkvæmt dómnum var hún sakfelld fyrir að hafa í júní 2023 tekið við og geymt stolið myndefnis­tæki, Canon 80D myndavél og Mavic Air 2 dróna, á heimili sínu í Reykjavík. Munirnir voru ávinningur þjófnaðar sem framinn hafði verið sama dag.

Auk þess var hún dæmd fyrir fjársvik eftir að hafa fengið eiganda munanna til að leggja 20 þúsund krónur inn á banka­reikning sinn gegn loforði um að afhenda honum mynda­vélina. Af afhendingu varð hins vegar ekki og nýtti hún fjár­munina í eigin þágu.

Þá var hún einnig sakfelld fyrir annað peningaþvættis­brot í maí 2024 þegar hún tók við og geymdi tvo Lenovo X1 Yoga fartölvur og svarta 66°Norður úlpu sem einnig reyndust vera þýfi úr þjófnaði.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að konan hafði áður hlotið dóma fyrir auðgunar­brot. Brotin frá árinu 2023 voru jafnframt talin fela í sér rof á skilyrðum reynslu­lausnar sem henni hafði verið veitt árið 2022 vegna eldri fangelsis­dóms.

Dómurinn taldi játningu hennar og þann tíma sem liðinn var frá hluta brotanna til refsimildunar, en fyrri saka­ferill hennar hafði áhrif til refsiþyngingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim