Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Segir skatta of lága á Íslandi: „Þessi hugsun hefur komið okkur í þá stöðu sem við erum í“

Grímur Atlason
Grímur Atlason

Grímur Atlason, bassa­fantur og framkvæmdar­stjóri Geðhjálpar vill hækka skatta á Íslandi, samfélagsins til góða. Segir hann rótgróna hugsun landans ástæða þess að ástandið á landinu er eins og það er.

Í nýrri færslu á Facebook skrifar Grímur Atlason, framkvæmdar­stjóri Geðhjálpar og eigin­maður Helgu Völu Helga­dóttur þingmanns Samfylkingarinnar, um grein sem hann las eftir eldri mann á dögunum. Sá gamli var ósáttur við það hvað yngri kynslóðir færu illa með eldri borgara landsins. Grímur bendir á í færslu sinni að maðurinn hafi skautað fram hjá þeirri staðreynd að kynslóðin sem nú er komin á eftirlaun, beri töluverða ábyrgð á því „hvernig er að vera gamall á Íslandi í dag.“ Segir hann að mjög stór hluti þessa fólks hafi talið skynsamlegt að hafa skatta sem lægsta hér á landi. Segir hann að áhrifin komi ávalt betur og betur í ljós. Nefnir Grímur sem dæmi biðina eftir læknis­þjónustu og geðþjónustu sem og ástandið á bráða­móttökunni og fleira í þeim dúr. Segir hann að lokum að ástandið haldi áfram að vera svona slæmt, „nema þjóðin átti sig á því að samfélag er þegar öll taka þátt og leggja sann­gjarnan skerf til samneyslunnar.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Ég las grein í blaði á dögunum eftir mann á góðum aldri. Hann var ósáttur við það hvernig við færum með eldri borgara þessa lands – fólkið sem byggði upp landið og samfélagið. Hann var ómyrkur máli og skammaði yngri kynslóðir. Þetta er ekki fyrsta greinin og án efa ekki sú síðasta sem ég les um þetta efni. Margir eru ósáttir við þau sem núna eru á vinnu­markaði og virðast hafa gleymt hinum eldri.

Hann skautaði hins vegar framhjá ákveðnum stað­reyndum. Kynslóðin sem nú er komin á eftirlaun, reyndar nokkuð breytt bil eða fólk á aldrinum 65 til 105 ára, ber nefnilega talsverða ábyrgð á því hvernig það er að vera gamall á Íslandi í dag. Mjög stór hluti þessa fólks taldi það skynsamlegt að hafa skatta sem lægsta á Íslandi. Það þótti, og þykir því miður enn, betra að horfa í átt til svokallaðs frelsis Banda­ríkjanna og annarra sambærilegra þjóða þegar kemur að rekstri samfélagsins frekar en til hins norræna velferðar­samfélags. Skattar voru gegnum­gangandi frá seinna stríði og í raun til dagsins í dag 20-40% hærri í Danmörku, Noregi og Svíþjóð en á Íslandi. Þeir efnameiri greiddu jafnvel 100% hærri skatta þar en hér á Íslandi. Þessi hugsun hefur komið okkur í þá stöðu sem við erum í.Afleiðingarnar koma alltaf betur og betur í ljós. Hvað þarf að bíða lengi eftir viðtali við lækni á heilsu­gæslunni? Hvernig er staðan á bráða­móttökunni? Hvernig er heilbrigðis­þjónustan á lands­byggðinni? Hvað þarf að bíða lengi eftir plássi á hjúkrunar­heimili? Hvað þarf að bíða lengi eftir tíma hjá geðlækni? Hvernig er geðheil­brigðis­kerfið almennt? Hvernig gengur að manna leik­skólana? Hvernig hafa öryrkjar það á Íslandi? Hvernig hafa eldri borgarar það sem ekki gátu lagt til hliðar peninga á langri starfsævi? Við getum þannig farið yfir alla þætti opinbers reksturs og spurt þessara spurninga. Svörin blasa við.Ísland er lítið land. Það kostar meira að reka litlar einingar en þær stærri. Hagkvæmni stærðarinnar gerir það að verkum að skattar ættu í rauninni að vera umtals­vert hærri hér en á Norður­löndum. Fyrir utan kostnaðinn við örmyntina sem við notum. Það er sorglegt að sjá hve margir virðast ekki sjá þetta samhengi. Það verða lengri og lengri raðir á Lækna­vaktinni í Austur­veri. Það verða fleiri og fleiri á biðlistum. Það blasir við. Nema þjóðin átti sig á því að samfélag er þegar öll taka þátt og leggja sann­gjarnan skerf til samneyslunnar.Ef fólk berst fyrir því að borga sem lægsta skatta allt sitt líf þá er óhjá­kvæmilegur fylgi­fiskur þess að þurfa að bíða eftir nauðsynlegri opinberri þjónustu svo mánuðum og árum skiptir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim