Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Bernskudraumur æskuvinkvenna rættist: „Af hverju gerum við þetta ekki bara?“

Vinkonurnar opnuðu saman netverslun
Vin­kon­urnar opn­uðu saman net­verslun

Æsku­vin­kon­urnar Alex­andra og Dagný Hrönn ákváðu að opna saman net­verslun.

Alex­andra Krist­jáns­dóttir og Dagný Hrönn Ásgeirs­dóttir hafa þekkst síðan í 4. bekk en þær kynnt­ust þegar Alex­andra byrj­aði í Lang­holts­skóla en Dagný var nem­andi þar fyrir. Þær urðu strax góðar vin­konur og hefur vin­áttan vaxið og dafnað síðan. Þær eru jafn­framt báðar mæður og eins og margir for­eldrar þekkja þá fyllt­ust geymslur þeirra af not­uðum barna­fötum. Það varð kveikjan að opna Bernsku. Mannlíf ræddi við Alexöndru um fyr­ir­tækið.

„Bernska er hringrás fyrir vönduð notuð barna­föt,“ sagði Alex­andra þegar hún var spurð hvað Bernska væri. „Í heild­ina litið er þetta ein­fald­ari leið til að bæði kaupa og selja not­aðar barna­vörur. Verslar bara í þæg­indum heima á net­inu, getur leitað og flokkað eftir stærðum, merki og vöru­teg­und.“

Eins og áður segir þá kvikn­aði hug­myndin út frá geymslum fullum af barna­fötum en þær voru óhræddar að taka stökkið saman og stofna fyr­ir­tæki.

„Vorum búnar að vera í margar vikur að mana okkur upp í að fara í það að yfir­fara, verð­setja og allt sem fylgir því að selja sjálfur, svo bara kom þessi hug­mynd. „Vá, hvað það væri „næs“ ef við gætum skutlað þessu til ein­hvers og fengið greitt strax.“. Þegar við byrj­uðum að ræða þetta okkar á milli þá kom upp spurn­ingin „Af hverju gerum við þetta ekki bara?“.“

„Þessa dag­ana erum við á fullu að svara öllum þeim sem hafa áhuga á að fá til­boð í vör­urnar sínar,“ sagði Alex­andra um næstu skref þeirra Dagnýjar. „Það kom engin smá spreng­ing fyrstu sóla­hring­ana eftir við opn­uðum og alltaf að bæt­ast í það á hverjum degi. Við erum á fullu að fara yfir alla póstana og ættu allir að fá svör um hvenær og hvort við getum tekið á móti vörum á næstu dögum. Það var greini­lega vöntun á svona og okkur óraði ekki fyrir þessum frá­bæru við­tökum, að fá svona mikið í einu og erum við á fullu að vinna úr þessu öllu eins hratt og við getum.“

En stendur til að opna búð sem hægt er að fara í?

„Þetta var í upp­hafi hugsað sem verslun sem þú gast mætt í, þar sem vörum væri raðað í stærð­ar­röð svo það væri þæg­in­legra að kaupa vörur og finna það sem maður var að leita að og þeir sem myndu vilja selja okkur vörur gætu þá komið í versl­un­ina og fengið til­boð nán­ast á staðnum. En við ákváðum svo að fara þessa leið, byrja með lít­inn lager af fötum, og vera með heima­síðu þá værum við líka að opna dyrnar fyrir allt landið til að kaupa og selja not­aðar vörur. Ætti næsta skref sé ekki að mastera verk­ferla og fram­tíð­inni opna verslun líka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar