Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Eldhúsið innréttað – hvernig nýtirðu rýmið best?

Margt ber að hafa í huga þegar eldhús er innréttað, hvort sem það er verið er að gera upp gamalt eldhús eða innrétta í fyrsta skipti í nýju húsnæði. Við viljum nýta rýmið sem best og um leið hafa það fallegt fyrir augað og gera það að okkar. Við fórum á stúfana og fengum góð ráð hjá Berglindi Berndsen innan­húss­arkitekt en hún býr á Seltjarn­ar­nesi og rekur sína eigin stofu á Fiskislóð 31 í Reykjavík.

||||
||||
Berglind Berndsen, inn­an­hús­arki­tekt, gefur góð ráð.

Hvað hefur þú í huga varðandi nýtingu þegar þú innréttar eldhús?
„Eitt af hlut­verkum okkar arkitekta og innan­húss­arkitekta er að þarfa­greina og aðstoða viðskipta­vini okkar við að byggja upp drauma­heimili sitt. Markmið mitt er ávallt að skapa fallega umgjörð og að örva upplifun fólks á hönnun rýmisins og innviðum þess. Það sem mikil­vægast er að hugsa um er samband á milli skipulags og innra fyrir­komulags í sjálfu rýminu. Fólk hugar oft ekki nógu vel að grunn­skipulaginu sjálfu. Það þarf að úthugsa rýmið svo besta nýting náist. Huga þarf að einföldu og góðu vinnu­fyrir­komulagi og miklu skápa­plássi. Ef pláss er fyrir hendi reyni ég alltaf að hanna góðar eldhúss­eyjur eða extra djúpar innréttingar til að ná þessum eyju­fíling.  Svo eru búr og tækja­skápar eitt best falda leyndarmál eldhúsa. Góð vinnu­lýsing skiptir einnig gríðar­miklu máli upp á heildar­samhengið og hefur mikil áhrif á líðan fólk.“

Lumarðu á góðum ráðum fyrir eldhús, til að gera það aðgengilegra?
„Mikilvægt finnst mér að skapa rúmgott eldhús fyrir fólk, með miklu skápa­plássi, góðu vinnu­fyrir­komulagi og góðu flæði. Ég reyni einnig alltaf eftir fremsta megni að hanna stórar eyjur með góðri vinnu­aðstöðu í eldhús og mynda þannig eina samræmda heild.“

Skiptir máli að hugsa eldhúsið sem vinnurými fyrst og fremst?
„Nei, alls ekki. Þar sem allir fjölskyldu­meðlimir eru farnir að taka virkan þátt í eldhús­störfum, finnst mér í góðu lagi að hafa eldhúsið til dæmis sem hluta af borðstofu og stofu, það einfald­lega stækkar rýmið og flæði verður betra á milli rýma. Eldhús og borðstofa verða því oftast hjarta heimilisins.“

Hvernig hugsar þú efnisval í eldhúsi ?
„Ég leitast alltaf við að hafa efnisal í eldhúsum í samræmi við heildar­hönnun hússins. Ég heillast mikið af náttúru­legum efnivið á móti mjúkum, til dæmis er ég ofboðs­lega hrifin af marmara og dökk­bæsuðum innréttingum. Ég elti ekki mikið tísku­strauma. Einfald­leiki og tímaleysi er hinn fullkomni grunnur fyrir mér sem auðvelt er að vinna með og breyta um liti og stemningu hverju sinni og án mikillar fyrir­hafnar.“

Ertu með ákveðinn gátlista sem vert væri að fólk færi yfir, þegar það ákveður að endurnýja eldhúsið eða hannar/skipuleggur nýtt eldhús?
„Það sem mér finnst mikil­vægast fyrir fólk að hugsa þegar það ræðst í umfangs­miklar breytingar er að þær standist tímans tönn. Svo þarf að huga vel að vinnu­fyrir­komulagi og notagildi rýmissins, góðu skápa­plássi og góðri vinnu­lýsingu. Þar sem það ríkir meiri skilningur í dag á arkitektúr, skipulagi og vönduðum vinnu­brögðum er ég á því að við arkitektar getum sparað fólki mikinn tíma og mikla fjármuni með betri hönnun og nýtingu. Einlægni, traust og gott samband við verkkaupa er mjög mikil­vægur þáttur upp á jákvæða upplifun í lok verks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík