Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Örsaga eftir Elísabetu Jökulsdóttur

Elísabet Jökulsdóttir
Elísabet Jök­uls­dóttir Mynd: Facebook

Elísabet Kristín Jökuls­dóttir, ljóðskáld og rithöfundur birti nýverið örsögu á Facebook-vegg sínum sem vakti aðdáun lesenda.

Sagan er um gamlan þunglyndis­sjúkling sem býr einn í kofa úti í skógi – en svo er bankað á dyrnar. Í spjalli við blaðamann Mannlífs segir Elísabet söguna vera um maníu­ástand, en auðvitað má lesandinn túlka söguna á alla vegu, eins og gengur og gerist í listinni. Blaða­maður Mannlífs túlkaði söguna til dæmis sem svo að hún væri um ótta þunglyndis­sjúklings við ástina. Sitt sýnist hverjum, sem betur fer. Elísabet gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta söguna í heild sinni:

Einusinni var gamall þunglyndis­sjúklingur sem bjó í kofa úti í skógi og lá mestanpart í rúminu og gat ekki séð fallegu blómin fyrir utan eða neitt. Svo alltíeinu einn daginn var bankað en þunglyndis­sjúklingnum datt ekki í hug að opna. Bank, bank, heyrðist enn bankað. Hleyptu mér inn, mig langar bara í mjólkur­glas. Þunglyndis­sjúklingurinn opnaði dyrnar og sá stúlku í bláum kjól. Áttu mjólkur­glas, endurtók stúlkan. Stúlkan smeygði sér innfyrir og hann náði í mjólk, hellti í glas og gaf henni. Stúlkan settist við borðið í bláa kjólnum. Alltíeinu sá þunglyndis­sjúklingurinn að kjóllinn hennar var allur útí rauðum blómum. Þú verður að fara, sagði hann. Þetta er góð mjólk, sagði stúlkan og hann sá alltíeinu að neglurnar á henni voru langar og eldrauðar. Ég má ekki vera að þessu, sagði þunglyndis­sjúklingurinn. Viltu dansa, sagði stúlkan þá og dró hann útá gólfið, kjóllinn hennar varð eldrauður og eftir nokkra snúninga breyttist hún í eld í fangi hans. Eldurinn logaði og brann, gamli þunglyndis­sjúklingurinn forðaði sér út, kofinn hans brann til kaldra kola. Daginn eftir lá þunglyndis­sjúklingurinn á sviðinni jörðinni, örmagna og rétt gat lyft upp höfðinu en þá sá hann hvar stúlka í bláum kjól ruddi sér leið gegnum skóginn.

Að lokum er vert að benda þeim á sem vilja styrkja Hrafn, bróður Elísabetar, sem glímir nú við banvænt krabba­mein, að hægt er að gera það hér:

Reikningur: 1161-05-400511

Kennitala: 011165-3709

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim