Dagbókin er á sínum stað.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seljarnarnes:
Tilkynnt um umferðaslys í hverfi 108. Gerandi farinn af vettvangi er lögreglu bar að. Málið í rannsókn.
Aðili handtekinn vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna. Málið í rannsókn.
Tilkynnt um nokkrar líkamsárásir í hverfi 101.
Höfð voru afskipti af ökumanni sem var að aka á 149 km/klst þar sem hámarkshraði á götu er 80 km/klst. Ökumaður var einnig sviptur ökuréttindum. Ökumaðurinn á yfir höfði sér sekt.
Höfð voru afskipti af ökumanni sem var að aka á 144 km/klst þar sem hámarkshraði á götu er 80 km/klst. Ökumaður hafði einnig aldrei öðlast ökuréttindi. Ökumaðurinn á yfir höfði sér sekt.
Tilkynnt um þjófnað í verslun í hverfi 105. Málið í rannsókn.
Óprúttinn aðili handtekinn fyrir að standa í vegi fyrir lögreglubifreið við skyldustörf og neitaði að færa sig. Aðilinn fór ekki frá lögreglubifreiðinni og var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Þegar búið var að afla allra nauðsynlegra gagna neitaði aðilinn að fara á brott af varðsvæði lögreglu. Var hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
Höfð voru afskipti af tveimur ökumönnum sem voru að aka án réttinda.
Tilkynnt um innbrot á vinnusvæði í hverfi 225. Málið í rannsókn.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:
Aðili handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Aðili handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir