Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Á von á barni

Sam­fé­lags­miðla­stjörn­urnar hafa í nógu að snú­ast í páska­frí­inu, ætla að njóta hátíð­ar­innar og að sjálf­sögðu að fá sér páska­egg.

|Samfélagsmiðlaparið Ingólfur og Tinna eiga von og barni í ágúst. |Sigrún Sigurpáls nýtur hér lífsins í Sjóböðunum á Húsavík en páskunum mun hún meðal annars verja í innanhúsframkvæmdir. |Eva Ruza Miljevic
|Sam­fé­lags­miðla­parið Ingólfur og Tinna eiga von og barni í ágúst. |Sigrún Sig­ur­páls nýtur hér lífs­ins í Sjó­böð­unum á Húsavík en pásk­unum mun hún meðal ann­ars verja í inn­an­hús­fram­kvæmdir. |Eva Ruza Miljevic
Sigrún Sig­ur­páls nýtur hér lífs­ins í Sjó­böð­unum á Húsavík en pásk­unum mun hún meðal ann­ars verja í inn­an­hús­fram­kvæmdir.

„Sko, mitt páska­egg í ár verður Bailyes-páska­egg. Er hægt að biðja um betra kombó?“ segir Sigrún Sig­ur­páls snapp­ari frá Egils­stöðum sem nýlega keypti sér gam­alt ein­býl­is­hús þar eystra ásamt sam­býl­is­mann­inum Stein­þóri Guðna Stef­áns­syni.

„Við erum nátt­úr­lega að brasa í hús­inu sem við vorum að kaupa og munum að ein­hverju leyti nota páska­fríið í það. En aðal­lega ætla ég að vera með börn­unum mínum fjórum, fara með þau út í nátt­úr­una og leyfa þeim að upp­lifa hana. Það er svo mik­il­vægt að halda tengslum við nátt­úr­una og kenna börn­unum okkar að meta hana. Langbest að byrja á meðan þau eru ung. Þá læra þau frekar að leika sér úti og njóta þess að vera í fersku lofti en ekki lokuð inn í her­bergi í tölvum.

Á páska­dag fer fram hin árlega páska­eggja­leit og ég mun sem fyrr leggja mik­inn metnað í að fela eggið hans Stein­þórs. Ég hef falið það á ótrú­leg­ustu stöðum þannig að hann hefur verið að því kom­inn að gef­ast upp. Einu sinni límdi ég það til dæmis einu sinni undir lazyboy-stól­inn hjá pabba mínum,“ segir hún hlægj­andi og bætir við: „Svo á ég afmæli annan í páskum og mun halda upp á það með mínum nán­ustu.“

Sam­fé­lags­miðla­parið Ingólfur og Tinna Björk Krist­ins­dótt­ir eiga von og barni í ágúst.

Kominn tími til að þroskast
Ingólfur Grét­ars­son eða Gói Spor­trönd eins og hann kallar sig ætlar að nýta pásk­ana til að þroskast örlítið meira eins og hann orðar það sjálfur.

„Ég er að verða pabbi í ágúst þannig að mig langar að fók­usa á það yfir pásk­ana. Það er kom­inn tími til að þroskast aðeins meira,“ segir hann ábyrgð­ar­fullur. „Ég á að vera á vakt föstu­dag­inn en ætla að nota helg­ina til að koma mér á beinu braut­ina. Dropbox-, Spotify- og Adobe CC-áskrift­irnar mínar voru að klár­ast og ég þarf að skoða hvernig ég á að haga pen­inga­mál­unum mínum.“

Hann ætlar svo að fá sér 450 g páska­egg númer 5 frá Góu. „Já, frá Góu því ég er Hafn­firð­ingur. En var eitt­hvað að spá hvort ég ætti að fá mér hvítt páska­egg í ár en vildi ekki missa mig í flipp­inu þannig hefð­bundið súkkulaði páska­egg varð ofan á.“

Eva Ruza Miljevic. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Klessa um pásk­ana
„Pásk­arnir eru klessu­há­tíð í mínum augum,“ segir Eva Ruza þegar hún er spurð hvað hún ætli að gera um pásk­ana.  „Ég hef hugsað mér að vera klessa um pásk­ana. Ég þarf aðeins að núll­stilla mig eftir ansi langa skemmt­ana­törn og þá er ekk­ert betra en að liggja upp í sófa, borða súkkulaði og jafn­vel horfa á Ryan Reynolds í þröngum, rauðum sam­fest­ing – Deadpool. Ég er að vona að það mæti ekki haust­lægð yfir pásk­ana svo ég geti aðeins farið út að viðra fjöl­skyldu­með­lim­ina.“

Nóa páska­eggin hafa alltaf verið í upp­á­haldi hjá Evu en hún er farin að upp­lifa val­kvíða þegar kemur að því að velja rétta páska­eggið. „Á ég að borða venju­legt eða henda mér i óviss­una. Held ég muni splæsa í saltlakk­rís og sjáv­ar­salt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas