Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Vitni í máli Madeleine McCann stígur fram: „Hann fullvissaði mig um að barnið myndi ekki skaðast“

Madeleine McCann
Madel­eine McCann

Hinn grun­aði í hvarfi Madel­eine McCann, er sagður hafa unnið á tapas­barnum sem for­eldrar stúlkunnar borð­uðu kvöld­mat á dag­lega í fríi þeirra á Algarve. Breti sem bjó á svæð­inu seg­ist hafa heyrt af barna­ráns­á­ætlun viku áður en stúlkan hvarf.

Christian Brueckner hafði að sögn unnið á barnum þar sem Kate og Gerry McCann voru að borða með vinum kvöldið sem hin þriggja ára gamla Madel­eine hvarf í maí 2007. Hinn 47 ára gamli Brueckner á nú yfir höfði sér rétt­ar­höld í Þýska­landi, sak­aður um kyn­ferð­is­glæpi sem ekki tengj­ast McCann mál­inu.

Samkvæmt breskum manni, Ken Ralphs, sem bjó í suð­ur­hluta Portúgal þegar Madel­eine litla hvarf, segir að Brueckner hafi planað að ræna ungri stúlku og selja pari sem ekki gat eign­ast börn. Segist hinn 59 ára Breti halda að Brueckner og félagi hans hafa að end­ingu farið eftir plan­inu og rænt Madel­einie úr svefn­her­bergi hennar á hót­el­inu.

Ralphs sagði í sam­tali við fjöl­miðla að hann hefði grunað að glæpa­menn­irnir hefðu „misst kjarkinn“ þegar kom að því að selja hana eftir að hafa séð víð­tæka umfjöllun um hvarf hennar um allan heim. Ralphs sagð­ist hafa farið til portú­gölsku og bresku lög­regl­unnar á sínum tíma með grun­semdir sínar. Hann seg­ist hafa fengið mis­vísandi frá­sagnir frá báðum um hvort ábend­ingar hans hafi verið rann­sak­aðar. Brueckner, sem situr nú í fang­elsi fyrir nauðgun árið 2005 á 72 ára gam­alli konu í Praia da Luz, fékk stöðu grun­aðs í mál­inu árið 2020 hjá lög­regl­unni í Þýska­landi, sem var að rann­saka hann.

Ralphs hélt því fram að sam­eig­in­legur vinur hins þýska Brueckner hafi sagt honum um viku áður en Madel­eine hvarf að „Christian ætl­aði að taka barn frá Praia da Luz.“ Ralphs sagði eft­ir­far­andi við fjöl­miðla en Mirror segir frá: „Hann skýrði síðan frá því að þetta yrði ekki gert fyrir lausn­ar­gjald heldur að það ætti að taka barn til að selja þýskum hjónum sem gætu ekki eign­ast börn sjálf.

„Hann full­viss­aði mig um að barnið myndi ekki skað­ast,“ sagði Ralphs og bætti við að honum hafi verið sagt af öðrum karl­manni að Christian hafi „þekkti marga, sem ekki gætu átt börn, sem myndu borga góðan pen­ing fyrir barn og að barnið yrði tekið frá ríkri fjöl­skyldu sem er með fleiri en eitt barn, svo for­eldr­arnir myndu ekki syrgja eins mikið.“

Leitað var á land­skika nærri heim­ili Christians Brueckner í Portúgal, á síð­asta ári í tengslum við McCann málið, en ekk­ert óyggj­andi hafi komið út úr því. Þó að Bueckner sé dæmdur fyrir aðra glæpi, hefur hann ekki enn verið kærður í tengslum við hvarf Madeli­ene litlu en hann neitar allri aðild að mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Daraxonrasib sýndi lofandi árangur hjá fólki með útbreitt briskrabbamein, en frekari rannsóknir þurfa að leiða í ljós hversu lengi áhrifin vara.

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife