Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Njóta áhrifavaldar trausts neytenda?

Andrea Guðmunds­dóttir, doktorsnemi í alþjóða­samskipta- og fjölmiðla­fræði við City University of Hong Kong, mun halda fyrir­lestur á morgun þar sem hún fjallar um rannsókn sína á áhrifa­völdum.

Andrea mun meðal annars varpa fram spurningum um hvað liggi að baki vinsældum áhrifa­valda, hvernig hinn almenni neytandi upplifir meðmæli áhrifa­valda og hvort áhrifa­valdar njóti trausts neytenda. Fyrir­lesturinn er haldinn undir yfir­skriftinni Áhrifa­valdar! Trúverðugir neytendur eða auglýsendur?

Spurð út í hvað kemur til að hún sé að rannsaka áhrifa­valda segir Andrea: „Vegna þess að það er svo margt áhugavert við það hvernig venjulegt fólk, almennir neytendur, sem byrja að blogga geta öðlast svona miklar vinsældir eins og raun ber vitni. Þeir byrja kannski með nokkur hundrað fylgjendur en eru svo á skömmum tíma komnir með þúsundir fylgjenda. Og þá er áhugavert að skoða hvernig almennir neytendur upplifi meðmæli þeirra.“

Getur reynst erfitt að sjá mun á auglýsingu og meðmælum

Svokallaðir áhrifa­valdar hafa verið mikið í umræðunni undan­farið, sérstak­lega eftir að Neytenda­stofa hefur þurft að minna á að duldar auglýsingar eru bannaðar og að bloggarar þurfa að fylgja ákveðnum reglum þegar kemur að því að birta umfjöllun sem fyrirtæki hafa greitt fyrir.

Í sjálfu sér er ekk­ert óeðli­legt að blogg­arar séu að fá greitt fyrir vinnu sína, en vanda­málið er að þetta er stundum ekki nógu skýrt.

„Sumir bloggarar eru að fá greitt fyrir færslur og það hefur verið að færast í aukana með árunum,“ segir Andrea og bendir á að stundum geti verið erfitt fyrir neytendur að gera greinarmun á keyptri umfjöllun og einlægu meðmæli bloggara.

„Samkeppnin er að aukast og auðvitað tekur mikinn tíma að blogga. Þannig að í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt að bloggarar séu að fá greitt fyrir vinnu sína, en vanda­málið er að þetta er stundum ekki nógu skýrt.“

Andrea bendir á að umræðan í kringum áhrifa­valda hafi þróast mikið undan­farið. Aðspurð hvort það sé hennar upplifun að fólk sé almennt orðið meðvitað um viðskiptin sem eiga sér oft stað í kringum færslur bloggara segir Andrea: „Já, það virðist vera að neytendur hafi skilning á bloggarar fái gjarnan greitt fyrir umfjöllun.“

Skoðar hvernig áhrifavaldar bregðast við

Andrea byggir rannsóknar­verkefni sitt á upplifun neytenda á áhrifa­völdum og hefur til þess búið til mæli­kvarða þar sem ýmsir þættir eru skoðaðir, svo sem traust og áreiðanleiki. „Með þessum mæli­kvarða skoða ég hversu trúverðugir áhrifa­valdar eru í augum neytenda.“

Til viðbótar við það að rannsaka hvernig neytendur upplifa áhrifa­valda er Andrea einnig að rannsaka hvernig áhrifa­valdar eru að bregðast við breyttri umræðu. „Áhrifa­valdar vilja auðvitað halda sínum trúverðug­leika þó að þeir séu að fá borgað. Trúverðug­leikinn er þeim mikil­vægur. Þess vegna er áhugavert að sjá hvernig þeir bregðast við. Í ljósi þessarar umræðu um „sponsaðar“ færslur þá eru áhrifa­valdar gjarnan farnir að leggja meiri áherslu á að það sem þeir eru að skrifa um sé eitthvað sem þeir virkilega mæla með og nota sjálfir.“

Þetta er venju­legt fólk og við viljum gjarnan skoða fólk sem lifir svip­uðum lífs­stíl og við sjálf.

Að lokum, spurð út í hvort hún hafi komist að einhverri niður­stöðu um af hverju margir áhrifa­valdar ná eins miklum vinsældum og raun ber vitni segist Andrea telja hluta ástæðunnar vera þá að neytendur geta frekar samsamað sig við áhrifa­valda, miðað við t.d. stór­stjörnur. „Þetta er venjulegt fólk og við viljum gjarnan skoða fólk sem lifir svipuðum lífsstíl og við sjálf.“ Hún bendir þó á að í þessu geti falist ákveðin mótsögn því um leið og áhrifa­valdar verða mjög vinsælir fá þeir gjafir frá fyrir­tækjum og greitt fyrir færslur, ólíkt hinum almenna neytanda.

Áhuga­sömum er bent á fyrir­lestur Andreu sem haldinn verður á morgun klukkan 12.00 í stofu VHV 023 í Háskóla Íslands, fyrir­lesturinn er haldinn í tengslum við MBA námið sem kennt er við HÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim