Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sara er meistaranemi í hugvíkkandi efnum: ,,Mesta bylting geðlæknisfræðinnar í 50 ár”

Sara María
Sara María Mynd: gedhjalp.is

Sara María Júlíusdóttir er fyrsti Íslend­ingurinn í masters­námi í hugvíkkandi efnum. Sara, sem er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar segir lands­lagið á Íslandi hafa gjörbreyst undan­farin ár. Nú sé mikið af bæði löggæslu­fólki og heilbrigðis­fólki orðið mjög opið eftir að hafa séð það sem er að gerast:

,,Hreint MDMA í réttum skömmtum ýtir undir samkennd hjá fólki, en svæfir árásar­gjarna hlutann í heilanum. Það er bara einföld staðreynd að ef fólk væri á réttum skömmtum af MDMA í miðbænum um helgar í staðinn fyrir áfengi, þá væru ekki hnífs­stungur eða líkams­árásir. Ég fullyrði það. Auðvitað er það viðkvæm umræða að tala um skaðsemi áfengis af því að við notum það svo mörg og það er svo inngróið í samfélagið. En ef við horfum á það sem er að gerast í miðbænum um helgar hljótum við að geta verið sammála um að það sé ekki eðlilegt. Óorðið sem var komið á hugvíkkandi efni í langan tíma var ekki síst af því að fólk var að nota þessi efni á djamminu ofan í áfengi, amfetamín, kókaín og svefn­leysi. Það mun auðvitað ekki enda vel. Ég finn það á samtölum mínum við bæði þingmenn, heilbrigðis­starfsfólk og fleiri að það er vitundar­vakning í gangi.”

Sara segist sannfærð um að hugvíkkandi efni séu mesta bylting geðlæknis­fræðinnar í áratugi:

,,Ég á mér þann draum að samfélagið eigi alvöru samtal um þessi efni, að þetta hætti að vera tabú og að fagfólk komi meira að þessu á næstu árunum. Það er gríðar­lega mikið af venjulegu fólki að prófa hugvíkkandi efni núna, af því að fólk er komið á endastöð með aðrar lausnir. Það hefur í raun orðið sprenging og veldis­vöxtur í þessu að undan­förnu. Það eru að dreifast út um allt Ísland jákvæðar reynslu­sögur frá venjulegu fólki og ég er sannfærð um að það sé að gjör­breyta lands­laginu. Það er gríðar­lega stór hópur af fólki á Íslandi í mikilli vanlíðan og ef fólk finnur lausn á sinni vanlíðan getur ekki verið rétt að banna það. Það hefur verið mikið af röngum upphrópunum um þessi efni undan­farna áratugi, allt frá því að Richard Nixon hóf ,,the war on drugs”. Munurinn á þessum efnum annars vegar og fíkni­efnum hins vegar er að hugvíkkandi efni færa mann nær sjálfum sér og láta mann mæta sjálfum sér á meðan fíkni­efnin hjálpa manni að flýja sjálfan sig. Nú eru rann­sóknirnar sem sýna fram á virkni þessarra efna við þunglyndi, kvíða, áfalla­streitu og fleiri hlutum taldar í þúsundum og það er ekki lengur hægt að loka augunum. Þetta er mesta bylting í geðlæknis­fræðinni í 50 ár,” segir Sara, sem tekur þó fram að hugvíkkandi efni séu ekki töfra­lausn og sérlega mikilvægt sé að nota efnin undir réttri hand­leiðslu og í réttum aðstæðum:

,,Þessi efni eru misnotuð, ofnotuð og notuð í röngum tilgangi og eins og með allt annað er þetta ekki hættu­laust. Einmitt þess vegna er svo mikilvægt að fagaðilar komi að þessu og að hægt sé að koma því við að fólk noti þessi efni undir réttri hand­leiðslu í réttu umhverfi. Ég sé ekki rökin fyrir því að fólk muni nota þessi efni meira eða á óábyrgari hátt ef þau verða lögleidd, heldur þvert á móti.”

Núna í byrjun janúar eru margir af helstu sérfræðingum heims í hugvíkkandi efnum að koma til Íslands á ráðstefnu sem Sara stendur fyrir, sem haldin verður í Hörpunni 12. og 13. janúar. Sara segist vilja að ráðstefnan stuðli að alvöru samtali í samfélaginu og að ráðamenn og fagfólk muni vonandi láta sjá sig:

,,Ég bind miklar vonir við að sjá bæði ráðherra, þingmenn, lögregluna og heilbrigðis­starfsfólk á þessa ráðstefnu. Það geti svo vonandi orðið upphafið að alvöru samtali í samfélaginu og kannski fyrsta skrefið í lögleiðingu. Það er ekki hægt lengur að horfa á bann sem einhverja heildar­lausn og láta eins og það sé ekki búið að rannsaka þessi efni. Þegar fólk segist vilja sjá rann­sóknir er hægt að benda á að rann­sóknirnar núna skipta tugum þúsunda og það er búið að gera meira en 10 þúsund rann­sóknir bara á psílosíben, virka efninu í sveppum. Ég er að vinna að því að tengja saman fyrir­lesarana á ráðstefnunni og yfirvöld á Íslandi, til þess að það geti átt sér stað heild­stætt samtal. Ég trúi því að Ísland geti orðið leiðandi í rann­sóknum á hugvíkkandi efnum og veit og finn að það er ákveðin bylting að eiga sér stað hér á landi.”

https://www.youtube.com/watch?v=P5Ep0dk9DfQ&t=5s

Þáttinn með Söru og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálgast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi