Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Strákarnir í Kaleo hvattir til að hætta við tónleika í Ísrael – 150 skrifa undir áskorun

Kaleo
Kaleo

Hátt í 150 ein­stak­lingar skrifa undir ákall til Kaleo um að hætta við tón­leika sína í Ísrael

Í dag var birt opið bréf til hljóm­sveit­ar­innar Kaleo vegna áforma hennar um að spila á tón­leikum í Ísrael síðar í júní.

Undir bréfið skrifa hátt í 150 ein­stak­lingar, stuðn­ings­fólk frjálsrar Palest­ínu og aðgerða­sinnar BDS á Íslandi. Um er að ræða fjöl­breyttan hóp fólks, þeirra á meðal er fólk sem starfar í listum, menn­ingu og tón­list.

Í bréf­inu er ákall til hljóm­sveit­ar­innar Kaleo um að hætta við fyr­ir­hug­aða tón­leika sína í Ísrael þar sem ísra­elskar lista- og menn­ing­ar­stofn­anir taka beinan þátt í að við­halda, verja og hvít­þvo kúgun ísra­el­skra stjórn­valda á palest­ínsku þjóð­inni. Í gegnum listir, menn­ingu og íþróttir reyna ísra­elsk stjórn­völd gagn­gert að fegra ímynd sína á alþjóða­vett­vangi á meðan brotið er á mann­rétt­indum palest­ínsku þjóð­ar­innar á bak við tjöldin.

Hljóm­sveitin er hvött til þess að taka afstöðu gegn stríðs­glæpum og þjóð­ern­is­hreinsun og taka ekki þátt í hvít­þvotti ísra­el­skra stjórn­valda. Hún er hvött til þess að grafa ekki undan mann­rétt­inda­bar­áttu palest­ínsku þjóð­ar­innar en snið­ganga eins og þessi er sú leið sem palest­ínska þjóðin hefur ákveðið að fara í bar­átt­unni fyrir frelsi sínu og hefur óskað eftir stuðn­ing alþjóða­sam­fé­lags­ins við þessa frið­sam­legu leið.

Þá er bent á að sífellt stækk­andi hópur lista­fólks neitar að koma fram eða sýna list sína í Ísrael. Á meðal þeirra sem hafa afþakkað boð um að koma fram eða hætt við að koma fram eru Lana Del Ray, Lorde, Roger Waters, Elvis Costello, Natalie Imbruglia, Stevie Wonder, Lauryn Hill og nú síð­ast Sam Smith, sem ætl­aði að koma fram í Ísrael núna í lok maí en hætti við stuttu fyrir tón­leik­ana.

Þá skrif­uðu árið 2021 meira en 600 ein­stak­lingar sem starfa við tón­list undir áskorun til ann­ars tón­list­ar­fólks um að koma ekki fram í Ísrael, að taka ekki þátt í hvít­þvotti ísra­el­skra menn­ing­ar­stofn­ana og styðja frels­is­bar­áttu palest­ínsku þjóð­ar­innar. Þar að auki hafa 1500 írskir ein­stak­lingar sem starfa í listum og menn­ingu skrifað undir heiti þess efnis að koma ekki fram í Ísrael og þiggja ekki styrki frá stofn­unum sem hafa tengsl við ísra­elsk stjórn­völd þar til ísra­elsk stjórn­völd virða alþjóða­lög og mann­rétt­indi palest­ínsku þjóð­ar­innar.

Hljóm­sveitin Kaleo er hvött til þess að bregðst við því ákalli sem hefur beinst að þeim síð­ustu vikur, nú síð­ast í þessu opna bréfi, og hætta við að koma fram í Ísrael og sýna þess í stað palest­ínsku þjóð­inni stuðn­ing í bar­átt­unni fyrir til­vistar­rétti sínum sem fer fram á hverjum ein­asta degi!

Bréfið er einnig sent með­limum hljóm­sveit­ar­innar.Ákallið í heild sinni og nöfn þeirra sem skrifa undir má nálg­ast hér:

https://www.visir.is/g/20232422399d/kaleo-ekki-spila-i-israel

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas