Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Icelandair og hið nýja WOW rætt samstarf síðustu vikur

Icelandair Group lauk í dag hluta­fjár­út­boði sínu þar sem mark­mið fyr­ir­tæk­is­ins var að safna 20 millj­örðum króna í nýju hlutafé. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var áhugi fjár­festa á útboð­inu umfram vænt­ingar umsjón­ar­að­ila, Lands­banka og Íslands­banka. Allir stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins munu hafa sýnt útboð­inu áhuga og skráð sig fyrir nýjum hlutum. Þá var áhugi minni fjár­festa og almenn­ings einnig umfram vænt­ingar.

Icelandair mun á morgun til­kynna form­lega um nið­ur­stöðu útboðs­ins og þá umfram­eft­ir­spurn sem stað­festar heim­ildir Mannlífs herma að hafi verið. Umsjón­ar­að­ilar útboðs­ins hafa heim­ild til að stækka útgáfu nýrra hluta um þrjá millj­arða króna og búast má fast­lega við því að það verði gert.

Michelle Roosevelt Edw­ards búin að eiga í viðræðum við Icelandair

Greint var frá því í dag hjá mbl.is að Michelle Roosevelt Edw­ards, at­hafna­kon­an sem keypti eign­ir WOW air úr þrota­búi flug­fé­lags­ins hafi skráð sig fyrir sjö millj­örðum króna í hluta­fjár­út­boð­inu í dag. Sömu heim­ildir herma að Edwards von­ist til að halda á 25 pró­senta eign­ar­hlut að loknu útboð­inu.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur Edwards átt í óform­legum við­ræðum við stjórn­endur Icelandair und­an­farnar vikur og rætt mögu­lega sam­vinnu á milli Icelandair og félags í hennar eigu sem keypt hafi eignir úr þrota­búi WOW air.

Stóð ekki í skilum um umsamdar greiðslur til þrotabús WOW air

Edwards festi kaup á völdum eignum úr þrota­búi WOW air í júlí 2019 og var síðar nokkuð yfir­lýs­ingaglöð í umfangs­miklu við­tali við Við­skipta­Mogg­ann á þeim tíma. Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar um millj­arða í rekstr­arfé hins nýja félags var kaup­unum síðar rift þar sem Edwards gat ekki staðið skil á greiðslum vegna kaup­samn­ings félags Edwards og þrota­bús­ins en sú greiðsla átti að skipt­ast í þrennt og var alls um 180 millj­ónir króna. Síðar boð­aði Edwards til kynn­ing­ar­fundar þar sem sam­komu­lag hafi náðst á milli einka­hluta­fé­lags hennar, USAerospace Associates LLC og skipta­stjóra þrota­bús WOW Air á öllum eignum sem til­heyrðu WOW vöru­merk­inu.

Í ljósi við­skipta­sögu Edwards hér á landi verður að telj­ast lík­legt að umsjón­ar­að­ilar útboðs­ins biðji athafna­kon­una um stað­fest­ingu á greiðslu­getu áður en úthlutun til hennar getur átt sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas