Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Þegar Glúmur varð ástfanginn: „Menn verða í slíkri stöðu að hafa lágmarks sjálfsvirðingu“

Glúmur Baldvinsson er maður orða sinna. Sem eru góð. Mjög svo.
Glúmur Bald­vins­son er maður orða sinna. Sem eru góð. Mjög svo.

Glúmur Bald­vins­son segir að það sé „alkunna að ég forð­ast að gagn­rýna fólk. Persónur og ger­endur. Og jafn­vel leik­endur.“

Bætir við:

„Ástæðan fyrir þessu dreng­lyndi mínu er sú að ég hef svo stóra sam­visku og hlýja áru einsog Þór­hildur Sunna þekkir manna best. Þess vegna get ég ekki fengið mig til að segja hvað mér leið­ist Gísli Marteinn og flestir hans þættir. Nánast allir. Svo ég ætla bara að finna að einu.

Einu sinni fyrir langa löngu sem náms­maður var ég á ferð í Mílanó og gekk fram­hjá Giorgio Armani verzlun. Í glugg­anum voru brúnir upp­háir leð­ur­skór. Og ég varð ást­fang­inn við fyrstu sýn. Og keypti þá þrátt fyrir að eiga ekki fyrir þeim. En ég átti kredit­kort. Svo það redd­að­ist. Reyndar end­aði reikn­ing­ur­inn hjá afa. En það er önnur saga.“

Heldur áfram:

„Og svo bara stillti ég þessum skóm upp á borð og opn­aði rauð­víns­flösku og starði á skóna agn­dofa af ást. Mér datt ekki í hug að ganga í svo fögrum skóm í hálft ár. En svo kom ég heim og reim­aði loks­ins þessa skó um fætur mér og mætti í þessum skóm í jóla­boð hjá afa og ömmu í Sörla­skjóli eitt. Klukkan var orðin sex síð­degis. Afi sá skóna og sagði: Glúmur minn. Við klæð­umst ekki brúnum skóm eftir klukkan sex. Eftir þann tíma þurfa þeir að vera svartir. Þar lærði ég þá lexíu. Og hef fylgt henni síðan.“

Segir að end­ingu:

„Því spyr ég af hverju klæð­ist Gísli Marteinn ítrekað brúnum leð­ur­skóm um hákvöld? Slíkt er ekki við hæfi og slíkt þarf að stöðva. Menn verða í slíkri stöðu að hafa amk lág­marks sjálfs­virð­ingu. Þetta er mín eina og síð­asta gagn­rýni á GM. Svart eftir sex.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn