Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Sigga Kling fékk heilablóðfall: „Það er flökkusaga um að ég sé dauð, en ég hef breyst“

Spákonan og skemmti­kraft­ur­inn, Sigga Kling, mætti í Bakaríið á Bylgj­unni til að kveða niður orðróm um ótíma­bært frá­fall sitt; hið sanna í mál­inu er að Sigga fékk á dög­unum heila­blóð­fall í kjöl­far blóð­tappa.

Hún segir atburða­rás­ina hafa farið af stað fyrir tæpum mán­uði, er hún upp­lifði mik­inn slapp­leika.

„Ég gat bara ekk­ert. Átti að skemmta í Garð­ar­holti í afmæli. Og ég hélt ég væri með lágan blóð­þrýst­ing; ég hafði aldrei fengið það en mér fannst það svona lýsa sér á Google, það gæti verið… ég bara gat ekk­ert.

Svo fer ég út í bíl­inn að keyra og svo sé ég allt tvö­falt, þrefalt, fjór­falt og ég finn að ég á erfitt með að tala og svona. Og það hangir á mér and­litið í spegl­inum. En ég held ennþá að þetta sé lágur blóð­þrýst­ingur,“ sagði Sigga sem fór að lokum heim og að sofa: Fannst hún frekar hress er hún vakn­aði.

„Svo bara versnar þetta og versnar og maður vill nú síður fara á bráða­mót­tök­una; ég verð bara að segja það að það er nátt­úru­lega ekki endi­lega góð skemmtun. Svo klukkan þrjú þá er Stína systir komin með lakk­rís, því það var eina ráðið til að hækka blóð­þrýst­ing.“

Skömmu síðar voru sjúkra­flutn­inga­menn mættir á stað­inn; þrýst­ing­ur­inn var fínn en, í ljós kom að hún hafði fengið blóð­tappa sem hefði stöðvað blóð­flæði til heil­ans og leitt til heila­blóð­falls.

Nú er Sigga á alls konar lyfjum sem hún geymir í eggja­bakka.

„Það er gott ráð. En svo eru komnar svo miklar flökku­sögur. Og við erum líka hrædd við allt; það eru komnar flökku­sögur um að ég hafi verið á skemmtun og sjúkra­bíl­arnir og eitt­hvað. Og það er líka komin flökku­saga um að ég sé dauð,“ segir hún. Aðspurð segir hún það hins vegar fjarri sanni. „Nei, en það er eins og ég hafi breyst.“

Núna vill hún vekja Íslend­inga til með­vit­undar um ein­kenni heil­blóð­falls og ann­arra sjúk­dóma, enda vill Sigga fólki vel og hún nýtir erf­iða reynslu til að hjálpa fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto