Sigurður Örn Brynjólfsson, grafískur hönnuður, er látinn, en hann var 77 ára gamall. Mbl.is greindi frá andláti Sigurðar en hann lést í Eistlandi.
Sigurður fæddist árið 1947 í Reykjavík og voru foreldrar hans Helga Sigurðardóttir og Brynjólfur Ingólfsson. Sigurður var mikill listamaður og fór í listaskóla á Ísland og erlendis en hann var þekktur undir nafninu SÖB.
Hann starfaði sem grafískur hönnuður á mörgum íslenskum auglýsingastofum en varð síðar sjálfstæður listamaður og kenndi meðal annars grafíska hönnun við Myndlista- og handíðaskólann og þótti einn besti grafíski hönnuður landsins til lengri tíma. Á tíunda áratug síðustu aldar flutti Sigurður til Eistlands og vann þar að teiknimyndum og myndasögum en hann kom að gerð hátt í 100 teiknimynda. Hann birti meðal annars myndasögur í DV og Fréttablaðinu á sínum tíma og hélt listasýningar á Íslandi og út um allan heim.
Sigurður lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn og fjögur barnabörn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir