Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Prins Póló minnst: „Eitt af því síðasta sem hann sagði áður en hann kvaddi“

Svavar Pétur Eysteinsson, gjarnar þekktur undir listamanna­nafninu Prins Póló, lést í september síðastliðinn eftir áralanga baráttu við krabba­mein. 

Ekkja hans, Berglind Häsler er ásamt þeim Birni Kristjáns­syni og Benna Hemm Hemm í listrænni stjórn Havarí sem heldur Hátíð hirðarinnar þann 26.apríl næst­komandi, á afmælis­degi Svavars heitins. Hátíðin er í raun stórir tónleikar og er haldin til fagnaðar á afmælis­degi hans.

„Svavar Pétur var einstakur lista­maður sem hafði mikil áhrif á okkur öll. Hann var alltaf hvetjandi og drífandi. Nennti ekki að velta sér upp úr hlutunum og hafði mikla þörf til að láta galdurinn gerast. Í þessum anda langar okkur að minnast hans og blása í lúðra á afmælis­degi hans,“ segir í tilkynningu frá Hirðinni.

Svavar var menntaður ljós­myndari og grafískur hönnuður en var vinsæll á meðal þjóðarinnar fyrir tónlist sína og texta­smíði. Hann samdi og spilaði með hljómsveitunum Múldýrinu, Rúnk og Skakkamanage. Svavari var margt til lista lagt. Ásamt eiginkonu sinni, Berglindi, rak hann lífræna ræktun á Berufirði til margra ára. Hjónin voru frumkvöðlar í fram­leiðslu á íslensku grænmetis­fæði.

Berglind segir í samtali við Vísi að margir tónlistar­menn hafi flutt lög Svavars í jarðaför hans í einstak­lega fallegum útsetningum. Mikið var spurt um hvort gera ætti meira úr þessum flutningi laganna .Það var þá tekin ákvörðun um að halda tónleika til minningar um lista­manninn. „Þannig að úr varð að við ákváðum að gera þetta aftur en í þetta sinn viljum við fagna lífi hans og gera þetta að hátíð,“ segir Berglind í samtali við Vísi.

Svavar og Berglind.

Berglind og Svavar stofnuðu hljóm­sveitina Skakkamannage fljótlega eftir að samband þeirra hófst og mun hún koma fram á tónleikunum í fyrsta sinn í áraraðir. „Þegar við fengum þessa hugmynd þá hentum við bara út netinu til að sjá hverjir vildu vera með og svo bara sögðu allir já. Þannig að þetta varð rosalega stórt en það eru fimmtán bönd og hátt í sextíu tónlistar­menn sem koma að þessu.“

Allur ágóði af miðasölu rennur í minningar­sjóð Svavars sem mun árlega úthluta skapandi fólki með góðar hugmyndir fjarmagni. „Að þú sjáir að þarna sé einhver kandídat sem er líklegur til að framkvæma það sem honum dettur í hug. Svavari fannst það eiga að vera nóg. “

Margir hæfi­leik­a­ríkir tón­list­ar­menn koma fram á hátíð­inni. Þeir flytja sín eigin lög í bland við þau sem samin eru af Svavari.

Berglind segir frá einum af lokaorðum Svavars til hennar. „Eitt af því síðasta sem hann sagði áður en hann kvaddi var að hvetja okkur til að halda áfram að hafa gaman. Við verðum að verða við því eins og við getum.“

Tónleikarnir verða haldnir í Gamla Bíó á afmælis­degi Svavars, þann 26 apríl. Miðasölu og nánari upplýsingar má nálgast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim