Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Segir njósnað um þá sem gagnrýna viðbrögð við Covid: „Þetta mun ekki enda þar og ekki enda vel“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafns­son

Kristinn Hrafns­son segir að yfir­völd hafi nýtt sér heims­far­ald­ur­inn til þess að „berja niður gagn­rýn­is­raddi“ sem og hefja njósnir á þeim.

Í nýlegri færslu á Facebook vekur Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, athygli á frétt Daily Mail þar sem upp­ljóstrað er um njósnir þeirra sem gagn­rýndu við­brögð breskra yfir­valda við heims­far­aldr­inum. Segir Kristinn að þarna séu komnar fram sann­anir fyrir því sem hann hefði ótt­ast. „það að far­ald­ur­inn myndi leiða til þess að rík­is­valdið færi út fyrir ramma hins eðli­lega í að berja niður gagn­rýn­is­raddir og einnig hrein­lega hefja njósnir á þeim sem héldu á lofti gagn­rýnum spurn­ingum. Nú er þetta stað­fest í Bret­landi og hafa meðal ann­ars blaða­menn­irnir Peter Hitchens og Toby Young orðið fyrir barð­inu á þessum njósnum.“ Segir hann enn­fremur að nú muni, „eins og alltaf“ rík­is­valdið sem nú sé komið á bragði, verði haldið áfram. „Nú er farið á eftir þeim sem halda uppi gagn­rýni á opin­berar stjórn­ar­stefnur gagn­vart Úkra­ínu­stríð­inu. Þetta mun ekki enda þar – og ekki enda vel, nema menn bregð­ist við.“

Aukreitis segir Kristinn að það sé ekk­ert í lagi við þetta. „Allt í umræð­unni sem ekki er á opin­ber­lega skil­greindum með­al­vegi en nú rétt­læt­ing fyrir því að grípa til aðgerða eins og per­són­u­jósna.“ Færsluna má lesa hér fyrir neðan:

„Það eru komnar fram stað­fest­ingar á því sem ég ótt­að­ist, það að far­ald­ur­inn myndi leiða til þess að rík­is­valdið færi út fyrir ramma hins eðli­lega í að berja niður gagn­rýn­is­raddir og einnig hrein­lega hefja njósnir á þeim sem héldu á lofti gagn­rýnum spurn­ingum. Nú er þetta stað­fest í Bret­landi og hafa meðal ann­ars blaða­menn­irnir Peter Htchens og Toby Young orðið fyrir barð­inu á þessum njósnum. Og eins og alltaf þegar rík­is­valdið er komið á bragðið er haldið áfram. Nú er farið á eftir þeim sem halda uppi gagn­rýni á opin­berar stjórn­ar­stefnur gagn­vart Úkra­ínu­stríð­inu. Þetta mun ekki enda þar – og ekki enda vel, nema menn bregð­ist við.

Ég get létti­lega rakið þessa hroða­legu veg­ferð aftur til árás­ar­innar 11. sept­em­ber.Það er ekk­ert í lagi við þetta og sér­stak­lega alvar­legt þegar byrjað er að rétt­læta and­lýð­ræð­is­leg inn­grip með hug­tökum eins og “upp­lýs­inga­óreiðu”. Allt í umræð­unni sem ekki er á opin­ber­lega skil­greindum með­al­vegi en nú rétt­læt­ing fyrir því að grípa til aðgerða eins og per­són­u­jósna. Það er einnig ugg­væn­legt þegar risa­stór einka­fyr­ir­tæki sem skaffa vett­vang að stórum hluta fyrir opin­bera umræðu eru farin að vinna hönd í hönd með leynd­ar­stofn­unum rík­is­ins. Það er nú stað­fest bæði í Bret­landi og Banda­ríkj­unum.Það er einnig ömur­legt þegar “umræðu­stjórar” á hinum opin­bera vett­vangi leggja hönd á plóg með for­dæm­ingu eða smánun við berja niður við­horf eða umræðu sem telst ekki boð­leg á Með­al­veg­inum.Sá vegur er nú orðin full­komið öng­stræti – ef ekki blind­gata.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas