Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Slúður og slæm meðferð á dýrum

Kleindís?
Kleindís?

Í góðum málum

Fólk sem elskar gott slúður er í mjög góðum málum um þessar mundir. Nóg er af safa­ríkum sögu­sögnum og sann­indum um fræga og fal­lega fólkið á Íslandi, nú sem fyrr en síð­ustu vikur hafa verið ívið bita­stæð­ari en áður. Malaga-fang­inn Kleini byrj­aði með fit­ness-drottn­ing­unni Hafdísi Björgu en svo var það búið viku seinna. Eða hvað? Nokkrum dögum eftir að þau voru sögð hætt saman, voru þau búin að til­kynna sam­band sitt á Facebook og farin að birta upp­stilltar para­myndir á Instagram. Vítalía Lazareva er einnig búin að vera mikið á milli tann­anna á fólki und­an­farið ár en fréttir af henni und­an­farið hafa vakið gríð­ar­lega athygli en hún er sögð vera starfs­maður apó­teks sem fletti frægu fólki upp í lyfja­skrá í óleyfi. Þá full­yrti DV að hún sé enn og aftur tekin saman við Arnar Grant og þau flutt saman í íbúð í Garðabæ. Maður svitnar bara við að skrifa þetta. Svo má ekki gleyma Svölu og Alex­ander sem er betur þekktur undir hinu ofur svala gælu­nafni Lexi Blaze. Þau eru dug­lega að tjá ást sína á hvoru öðru á Instagram og aug­lýsa sam­band sitt með fínum árangri. Já, nú er gaman að vera til ef maður lifir fyrir sögum af lífi ann­ars fólks, hvort sem það sé filt­erað eða ekki.

Í slæmum málum

Húsdýr eru í slæmum málum miðað við fréttir und­an­farnar vikur, að minnsta kosti sums­staðar á land­inu. Fjöl­margar sögur hafa birst í fréttum af kindum, hestum og kúm sem illa hefur verið farið með og und­an­farið hefur ný saga sprottið upp nær viku­lega. Nýjustu dæmin eru frá Skaga­firði, þar sem kýr óðu mykju upp að hnjám, frá Mos­fells­dal þar sem áhyggju­fullur ein­stak­lingur til­kynnti illa farin hross, frá Arn­ar­firði fyrir Vestan þar sem kvartað var til Mast vegna illrar með­ferðar á hrossum. Þá er nýjasta dæmið frá Borg­ar­firði  en þar hafa kindur verið sagðar á hálf­gerðum ver­gangi og beri lömb undir berum himni á meðan svangir hrafnar og refir sóla í kring. Á einni ljós­mynd­inni sem tekin var að kind í Þver­ár­hlíð­inni, virt­ist sem hún væri með níð­þunga, margra ára gamla ull á sér. Dýra­vernd­ar­sinnar hafa verið dug­legir að fylgj­ast með slæmri með­ferð á búfén­aði og til­kynnt það til Mat­væla­stofn­unar. Mast hefur hins vegar verið gagn­rýnt harka­lega síð­ustu miss­erin fyrir að taka ekki eða illa á málum. Sjálf seg­ist stofn­unin fara eftir lögum og reglum og að sum mál séu við­kvæm­ari en önnur en að hún stígi alltaf inn í ef talið er að illa sé farið með dýr. En samt sem áður koma þessi mál upp aftur og aftur, oftar en ekki hjá sömu bænd­unum.

Pistill þessi birt­ist í nýja tölu­blaði Mannlífs, Sjóarinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas