Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

„Elsku þjófur! Vin­sam­leg­ast spar­aðu okkur báðum ómakið og láttu húsið vera.“

Bæjarins Beztu við Byko
Bæjarins Beztu við Byko Þjófarnir hafa ekki tekið mark á mið­anum Mynd: Bæjarins Beztu

Óprút­tnir aðilar hafa í fjór­gang brot­ist inn í pylsu­vagn Bæjarins Beztu við BYKO í Kópavogi und­an­farið án þess að hafa mikið upp úr krafsinsu. Skemmd­irnar eru metnar á yfir milljón króna.

Starfs­menn pylsu­vagns Bæjarins Beztu við BYKO hafa brugðið á það ráð að hengja upp miða á vagn­inn með skila­boðum til þjófa. Skila­boðin eru bæði á íslensku og ensku en í þeim stendur eft­ir­far­andi texti:

„Elsku þjófur! Það eru engir pen­ingar geymdir hér yfir nótt. Við tókum þá alla með okkur. Vin­sam­leg­ast spar­aðu okkur báðum ómakið og láttu húsið vera.“

Mannlíf ræddi við Baldur Inga Hall­dórs­son, eig­anda og fram­kvæmda­stjóra Bæjarins Beztu, og spurði hann út í inn­brotin. Samkvæmt Baldri hefur fjórum sinnum verið brot­ist inn í vagn­inn und­an­farið.

„Það er búið að vera leið­in­lega mikið um þetta, þetta árið hjá BYKO. Það er fjórum sinnum búið að brjót­ast inn hjá okkur og skemma vagn­inn mikið. Og ekki haft mikið upp úr krafs­inu svo sem.“

Aðspurður um upp­hæð tjóns­ins segir Baldur upp­hæða fara yfir milljón króna.

„Smið­ur­inn er mjög ánægður segir hann, af því að hann hefur fengið svo mikla vinnu út á þetta. Ætli þetta hlaupi ekki á yfir einni milljón króna.“

Baldur Ingi segir að eng­inn hafi náðst við inn­brotin en að á myndum sem hafa verið skoð­aðar megi sjá hettu­klædda menn að verki, þannig að það er ekki hægt að bera kennsl á þá.

„Þetta ger­ist á nótt­unni og á myndum sést að þetta eru bara hettu­klæddir menn og þeir hafa nán­ast ekk­ert upp úr krafs­inu. Ég held að það sé um 40.000 í heild­ina sem þeir hafa náð af pen­ingum og meiri­hlut­inn í klinki.“

En hefur verið brot­ist inn í vagn­inn frá því að mið­inn var hengdur upp?

„Já, það hefur gerst einu sinni eftir að mið­inn kom upp,“ svar­aði Baldur Ingi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum