Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Útskrifuð af sjúkrahúsi með lögregluvaldi: „Hún er fíkill“

Landspítali Fossvogi – myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Lára Garðarsdóttir
Land­spít­ali Fossvogi – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Jón Dan­í­els­son segir að kerfið sé að bregð­ast dóttur hans.

Í kröft­ugum pistli sem Jón Dan­í­els­son skrif­aði um helg­ina sagði hann frá bar­áttu hans og dóttur hans gegn kerf­inu. Dóttir hans kemst nefni­lega ekki á biðlista eftir hús­næði vegna skuldar og hún var útskrifuð með lög­reglu­valdi af spít­ala. Þá glímir dóttir hans við fíkni­vanda­mál.

„Dóttir mín er fík­ill. Eftir nokkur ár á göt­unni fékk hún úthlutað íbúð hjá Félags­bú­stöðum. Hún fékk skrán­ingu sem öryrki og af því leiðir að TR greiðir henni mán­að­ar­lega eitt­hvað yfir 300 þús­und á mán­uði inn á banka­reikn­ing til frjálsrar ráð­stöf­unar.

Þessir pen­ingar duga vel til að greiða lága húsa­leigu, sem hún gerir auð­vitað ekki. Hún er fík­ill. Það sem eftir verður dugar ljóm­andi vel til að greiða reikn­inga fyrir raf­magn og hita, sem hún gerir auð­vitað ekki. Hún er fík­ill. Fyrir þessa pen­inga er líka gert ráð fyrir að hún kaupi sér eitt­hvað að éta, sem hún gerir sjaldn­ast. Hún er fík­ill,“ sagði Jón í pistl­inum sem birt­ist á Vísi um helg­ina og að dóttir hans hafi verið útskrifuð af Land­spít­al­anum með lög­reglu­valdi í sept­em­ber.

„Ég var búinn að tala við vegg í vel á annan mánuð. Þegar mér var nú loks­ins nóg boðið og fór í þetta setu­verk­fall, kom í ljós að auð­vitað er biðlisti eftir íbúða­skiptum. Og þótt form­leg umsókn liggi fyrir, kemst dóttir mín ekki einu sinni á þann biðlista fyrr en hún er búin að gera upp millj­óna­skuld sína við Félags­bú­staði. Með hvaða pen­ingum?

Ef við reynum að draga þetta saman og máta við veru­leik­ann, sýn­ist mér að aðferða­fræðin sem við beitum til að þjón­usta fár­veika fíkla sé nokkurn veg­inn þessi:

Við sjáum þeim ekki fyrir hús­næði, raf­magni né upp­hitun.

Við gefum þeim ekki að éta.

Og við sjáum þeim að sjálf­sögðu ekki fyrir fíkni­efnum.

En við afhendum þeim fús­lega pen­inga til að fíkni­efna­kaupa á svörtum mark­aði. Nú mega allir verða eins hissa og þeir vilja á þeirri sér­visku fíkla að kaupa sér dóp fyrir húsa­leigu- og mat­ar­pen­ing­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar