Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ármann Leifsson kjörinn forseti Röskvu

„Ég vil skemmti­lega Röskvu sem heldur góðu jafn­vægi milli stemm­ingar og mál­efna“

Röskva
Röskva Nýkjörin stjórn Röskvu. Mynd: Aðsend

Röskva, sam­tök félags­hyggju­fólks við Háskóla Íslands, hélt sinn árlega aðal­fund í gær­kvöldi, mið­viku­dags­kvöldið 22. apríl, í safn­að­ar­heim­ili Nes­kirkju. Þar var kjörin ný stjórn hreyf­ing­ar­innar til eins árs og var Ármann Leifsson, 22 ára kenn­ara­nemi, kjör­inn nýr for­seti Röskvu. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Röskvu.

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að Ármann hafi verið virkur í félags­lífi og stúd­entapóli­tík um nokk­urt skeið og hafi meðal ann­ars verið kosn­inga­stjóri Röskvu í nýaf­stöðnum kosn­ingum til Stúd­enta­ráðs HÍ. Segist hann ætla að efla sam­heldni innan hreyf­ing­ar­innar og tryggja að Röskva haldi áfram að vera skýr rödd stúd­enta innan og utan háskól­ans.

„Ég vil skemmti­lega Röskvu sem heldur góðu jafn­vægi milli stemm­ingar og mál­efna. Við ætlum að halda áfram að vera vald­efl­andi vett­vangur fyrir öll þau sem vilja leggja sitt af mörkum í bar­átt­unni fyrir jöfn­uði og bættri stöðu stúd­enta,“ segir Ármann.

Þá var María Björk Stef­áns­dóttir, 21 árs efna­verk­fræði­nemi, kjörin odd­viti Röskvu í Stúd­enta­ráði. Samkvæmt frétta­til­kynn­ing­unni leggur María áherslu á að Röskva haldi áfram að vera hreyf­ing allra stúd­enta og halda áfram að sinna raun­veru­legri hags­muna­bar­áttu

„Jafn­rétti til náms er og verður rauði þráð­ur­inn í allri stefnu Röskvu – það er kjarn­inn í því sem við stöndum fyrir og það sem sam­einar okkur,“ segir María.

Ný stjórn Röskvu tekur nú við kefl­inu af frá­far­andi stjórn og segir í frétta­til­kynn­ing­unni að hún stefni á kraft­mikið starfsár með áherslu á mál­efna­starf, sam­stöðu og áfram­hald­andi bar­áttu fyrir rétt­indum stúd­enta. Maggi Snorra, fyrrum stúd­enta­ráðsliði Röskvu, var heiðr­aður á fund­inum með blóm­vönd fyrir hans fram­tak í hags­muna­bar­áttu stúd­enta og fyrir störf hans í gras­rót félags­ins.

Nýkjörin stjórn Röskvu:

● Ármann Leifsson, for­seti

● Soffía Svanhvít Árna­dóttir, vara­for­seti

● Hekla Jóns­dóttir, rit­ari

● Helgi James Price, gjald­keri

● Valeria Bulatova, rit­stýra

● Auður Aþena Ein­ars­dóttir, mark­aðs­stýra

● Rík­harður Daði Ólafsson, skemmt­ana­stjóri

● Þorbjörg Edda Valdi­mars­dóttir, kynn­ing­ar­stýra

● Katla Ólafs­dóttir, kosn­inga­stýra

● Abdullah Arif, alþjóða­full­trúi

● Styrmir Hallsson, meist­ara­full­trúi

● Jón Karl Ngos­hanthiah Karlsson, með­stjórn­andi

Á mynd­inni má sjá eft­ir­far­andi stjórn­ar­með­limi:

Efri: Styrmir Hallsson, Rík­harður Daði Ólafsson, Helgi James Price og Jón Karl Ngos­hanthiah Karlsson. Neðri: Auður Aþena Ein­ars­dóttir, Hekla Jóns­dóttir, Valeria Bulatova, María Björk Stef­áns­dóttir, Ármann Leifsson, Soffía Svanhvít Árna­dóttir, Þorbjörg Edda Valdi­mars­dóttir og Katla Ólafs­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas