Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Rannsaka starfshætti Gísla Jökuls: „Athuga hvort verklag hafi verið í samræmi við lög og reglur“

Gísli Jökull Gíslason lögreglumaður.
Gísli Jökull Gíslason lög­reglu­maður. Mynd: Facebook.

Lög­reglan skoðar hvort lög­reglu­maður hafi brotið lög

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur nú til skoð­unar hvort vinnu­brögð lög­reglu­manns­ins Gísla Jökuls Gísla­sonar hafi verið í sam­ræmi við lög og reglur.

Komið hefur fram á Mannlífi að Gísli villti á sér heim­ildir þegar hann rann­sak­aði hver stæði á bak við vef­síðu í nafni Samherja.

Í síð­ustu viku var greint frá því að vef­síða sem látin var líta út eins og hún væri tengd fyr­ir­tæk­inu Samherja; fölsuð afsök­un­ar­beiðni var send út; þar stóð stórum stöfum We’re Sorry, eða Við biðj­umst vel­virð­ingar. Var síðan hluti af loka­verk­efni lista­manns­ins Odee, Odds Eysteins Frið­riks­sonar.

Heim­ildin sagði frá því á föstu­dag­inn að lög­reglu­mað­ur­inn Gísli Jökull Gíslason hefði reynt að kom­ast að því hver væri á bak við vef­síð­una með því að villa á sér heim­ildir; sagð­ist vera sjálf­stætt starf­andi blaða­maður.

Gísli sendi tölvu­póstana úr vinnu­net­fangi sínu hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu; hann lýsti yfir aðdáun sinni á gjörn­ingnum og bað um að fá að vita hver yrðu næstu skref.

Kemur fram í umfjöllun Heim­ild­ar­innar að Gísli sé sér­fræð­ingur í net­glæpum hjá lög­regl­unni.

Samkvæmt RÚV þá segir Gunnar Rúnar Svein­björns­son kynn­ing­ar­full­trúi hjá lög­regl­unni að lög­reglan sé að skoða málið; lög­reglan hefur hins vegar ekki svarað því hvort þetta væru við­ur­kennd og eðli­leg vinnu­brögð hjá lög­regl­unni; né hvort kæra hefði borist frá Samherja á hendur lista­mann­inum Oddi.

Í yfir­lýs­ingu frá Gunnari við fyr­ir­spurn frétta­stofu RÚV segir að „emb­ættið stað­festir að til athug­unar sé hvort verk­lag við skoðun vef­svæð­is­ins og sam­skipti hafi verið í sam­ræmi við lög og reglur en að öðru leyti mun emb­ættið ekki tjá sig um mál­efni ein­stakra starfs­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas