Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

„Að sjá bandaríska fánann flökta í grámyglunni í dag fyllir mann stingandi óþægindum“

Auður Jóns­dóttir gagnrýnir meðvirkni hins vestræna heims

Bandaríski fáninn við sendiráðið
Banda­ríski fán­inn við sendi­ráðið Auður rýnir í ástand heims­ins í nýrri færslu Mynd: Facebook

Rithöfundurinn og blaða­konan Auður Jóns­dóttir gagnrýnir harðlega stefnu Banda­ríkjanna og viðbrögð vestrænna ríkja við átökum í Mið-Austur­löndum í nýrri færslu á samfélags­miðlum.

Í færslunni lýsir hún djúpum ótta og vanlíðan vegna stöðu heimsmála og segir meðal annars að tákn­myndir Banda­ríkjanna veki nú önnur viðbrögð en áður:

„Að sjá bandaríska fánann flökta í grámyglunni í dag fyllir mann stingandi óþægindum. Í dag er þessi fáni tákn vanmáttar heimsins gagnvart sturlun þeirri sem ræður Banda­ríkjunum - sem nú eru orðin endanlega uppspretta algjörs stjórn­leysis um leið og þau hafa misst stjórn á innrásinni í Íran, eins og spáð hafði verið, þessari myrku herferð með harðkjarna Ísrael, afli sem leitast við að drepa börn annarra þjóða. Bara eyða.“

Auður vísar jafnframt til orða Donald Trump og segir þau vekja upp sterk söguleg hughrif:

„Að sjá og heyra orð Trumps: „Heil siðmenning deyr í kvöld" er svo óhugnarlegt að Hitler er það næsta sem býr í hughrifum manns, manneskju sem í æsku var innrætt í viðhorfi umhverfisins að helförin ætti aldrei að fá að endurtaka sig. En Trump og hans fylgis­fólk er nú þegar búið að eyða siðmenningu, þeirri siðmenningu sem manni var innrætt að ríkti eins konar lágmarks skilningur um í frjáls­lyndum lýðræðis­ríkjum. Nokkuð sem reyndist vera bull.“

Í færslunni dregur hún einnig upp víðari mynd af þróuninni og segir hana hafa rætur að rekja lengra aftur í tímann:

„Og raunar má segja að sú skrumskælda atburðarás hafi hafist með innrásinni í Írak.“

Hún telur að ábyrgðin liggi ekki einungis hjá stjórn­málamönnum heldur einnig hjá almenningi og alþjóða­samfélaginu í heild:

„Til eru fleyg orð Önnu Frank eitthvað á þá leið að það séu ekki bara stjórn­mála­mennirnir og búrgeisarnir sem séu sekir, til þess að þeir geti framið sín voðaverk þurfi stuðning venjulega fólksins. Og það erum við að horfa upp á í dag. Meðvirkni þeirra sem stoppa ekki Trump.“

Bætir hún við að stjórnmála­fólk í Banda­ríkjunum og annarra landa sé full af meðvirkninni líka, sem og almenningur á Vestur­löndum.

„Öðruvísi væri þessi maður ekki við völd.“

Auður gagnrýnir að lokum það sem hún kallar skort á mannúð og tvöfalt siðferði í garð fólks í Mið-Austur­löndum:

„Nema að því að menning hins vestræna heims er meðvirkni, ráðvilla, blind einstaklings­hyggja og skortur á tilfinningu fyrir að gildi mannúðar, mann­virðingar og mann­réttinda megi sín einhvers. Og sú sjónvilla að telja að manneskjur í Mið-Austur­löndum, að frátöldu Ísrael, sé á einhvern hátt öðruvísi en við. Að barn í Íran, Líbanon eða Palestínu sé minna virði en börnin okkar. .“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim