Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Maður kom út á núlli. Maður gat ekkert lagt fyrir, til dæmis til að geta keypt sér íbúð“

Margir afrek­s­í­þrótta­menn, sér­stak­lega í ein­stak­lings­í­þróttum, standa höllum fæti fjár­hags­lega þegar ferl­inum lýkur og hafa ekki áunnið sér þau launa­tengdu rétt­indi og þá stöðu á vinnu­mark­aði sem jafn­aldrar þeirra hafa gert. Þeir hafa fært miklar fórnir til að ná árangri og keppa fyrir Íslands hönd, en bíta úr nál­inni að ferli loknum.

Hrafnhildur Lúthersdóttir
Hrafn­hildur Lúth­ers­dóttir

Umræða um rétt­indi og aðbúnað íþrótta­manna hefur verið hávær í sam­fé­lag­inu að und­an­förnu. Hópur íþrótta­manna afhenti í des­em­ber Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra áskorun um að vinna í launa- og rétt­inda­málum íslensks afrek­s­í­þrótta­fólks.

„Stór hluti af því að ég hætti svona snemma var að maður fékk ekki nægi­legan stuðn­ing,“ segir Hrafn­hildur Lúth­ers­dóttir, afreks­kona í sundi og tvö­faldur Ólymp­íu­fari. Hún hætti að keppa í sundi eftir Ólymp­íu­leik­ana í Ríó 2016, þar sem hún hafn­aði í sjötta sæti í 100 metra bringu­sundi. Óhætt er að segja að sú ákvörðun hafi komið á óvart, þar sem hún var í fremstu röð, aðeins 27 ára gömul.

Mannlíf ræðir í dag við þrjá íslenska afrek­s­í­þrótta­menn í ein­stak­lings­greinum, sem hafa þurft að fóta sig í sam­fé­lag­inu í nýju hlut­verki eftir far­sælan íþrótta­feril. Þeir eiga það allir sam­eig­in­legt að hafa rekið sig á hindr­anir sem eru beinar afleið­ingar íþrótta­fer­ils þeirra, sér­stak­lega hvað varðar rétt­indi sem launa­fólki þykja sjálf­sögð. Þar má nefna rétt til fæð­ing­ar­or­lofs, líf­eyr­is­rétt­indi og rétt­indi sem fylgja stétta­fé­lags­að­ild. Þessir íþrótta­menn eru, auk Hrafn­hildar, þau Þormóður Árni Jónsson júd­ó­kappi og Ragna Ing­ólfs­dóttir bad­mint­on­kona. Þau lýsa öll þeirri upp­lifun að vera ára­tug á eftir jafn­öldrum sínum, hvað áunnin rétt­indi og starfs­frama varðar, nú þegar fer­ill­inn er á enda.

Gat ekkert safnað

Hrafn­hildur segir við Mannlíf að hún hafi verið svo heppin að eiga for­eldra sem studdu dyggi­lega við bakið á henni. Hún fékk einnig styrki frá Afreks­sjóði ÍSÍ en þeir hafi naum­lega hrokkið fyrir þátt­töku­kostn­aði. „Maður kom út á núlli. Maður gat ekk­ert lagt fyrir, til dæmis til að geta keypt sér íbúð. Allir styrkir og önnur inn­koma fóru beint í kostnað við þátt­töku.“ Hún segir að fyr­ir­komu­lagið við styrk­veit­ingar til íþrótta­manna þurfi að breyt­ast. Styrkirnir séu ekki greiddir beint til íþrótta­manna heldur þess sér­sam­bands sem þeir til­heyri.

Hrafn­hildur seg­ist iðu­lega hafa þurft að leggja út fyrir kostn­aði vegna þátt­töku á mótum. Hún hafi getað fengið kostn­að­inn end­ur­greiddan þegar hún lagði fram nótur eða sýndi fram á útgjöld. „Af hverju fékk ég hann ekki bara upp í hend­urnar?“ spyr hún og bætir við að styrkirnir hafi ekki verið fyrir uppi­haldi eða æfinga­tíma­bilum. „Ég þurfi að halda sjálfri mér uppi þegar ég var við æfingar.“ Hún fékk líka vörur frá Speedo, Nike og Now, sér að kostn­að­ar­lausu. Það létti mikið undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas