Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er greint frá því að manneskjan sem lést í slysinu á Sæbraut aðfaranótt sunnudags hafi verið kona á fertugsaldri.
Ekki er hægt að gefa upp nafn hennar að svo stödd.
Í slysinu var fólksbifreið ekið norður Sæbraut, á milli Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar, og á gangandi vegfaranda sem var á leið yfir götuna til austurs. Lokað var fyrir umferð um vettvanginn á meðan unnið var að rannsókn málsins, líkt og venjan er þegar svo alvarlegt slys hefur átt sér stað, og mætti það litlum skilningi annarra vegfaranda, að sögn lögreglunnar. Fram kemur í tilkynningu lögreglu að lögreglumenn séu ýmsu vanir í þeim efnum, en „framkoma sumra í nótt væri dapurleg“ svo ekki sé meira sagt „og er fólk beðið um að taka þetta til sérstakrar umhugsunar.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir