Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

„Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“

Jasmina Vajzovic
Jasmina Vajzovic Mynd: Jasmina Vajzovic/Facebook

Jasmina Vajzovic gagn­rýnir ummæli Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra Ölfuss, um inn­flytj­endur og múslima. Elliði hafði sagt á Facebook óheftan straum inn­flytj­enda, sér­stak­lega múslima, valda skaða.

Jasmina, sem er múslimi og Bosníaki, segir ummælin bein­ast að fólki en ekki aðeins óper­sónu­legum hópi.

„Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ spyr hún í færslu á Facebook.

„Ég er múslimi. Ég er líka móðir, amma, fyrr­ver­andi vara­bæj­ar­full­trúi, stjórn­andi, verk­efna­stjóri og stjórn­ar­kona. Og margt fleira,“ skrifar hún og spyr jafn­framt hvað börn hennar og fjöl­skylda hafi gert Íslandi.

Jasmina segir að á bak við orðið múslimar séu ein­stak­lingar sem hafi ólíkar skoð­anir, líf og reynslu. Hún hafi sjálf byggt upp líf sitt á Íslandi, menntað sig, alið upp börn og tekið virkan þátt í lýð­ræð­inu. Hún hafi meðal ann­ars setið sem vara­bæj­ar­full­trúi, starfað í nefndum og komið að stofnun íþrótta­deilda og félaga.

„Hvenær fá þessi verk meira vægi en sú stað­reynd að ég er múslimi?“ spyr hún.

Elliði hefur síðar sagt á Bylgj­unni gagn­rýni sína bein­ast að inn­flytj­enda­stefnu og hug­myndum sem byggi á trú­ar­legum kreddum eða venjum sem gangi gegn jafn­rétti og frelsi.

Jasmina segir þá skýr­ingu ekki nægja og kallar eftir nákvæm­ari rök­stuðn­ingi.

„Hvaða ákvarð­anir? Hvaða hegðun? Hvaða gögn styðja hvaða nið­ur­stöðu?“ spyr hún og segir orðið múslimar ekki svara neinni þess­ara spurn­inga.

Hún tekur fram að gagn­rýna eigi trú­ar­brögð, kúgun, kven­fyr­ir­litn­ingu, ofbeldi og öfga­hyggju.

„Gerið kröfur til fólks og látið ein­stak­linga bera ábyrgð á eigin gjörðum. Ég geri það líka,“ skrifar Jasmina.

Hún seg­ist taka orð­ræð­unni per­sónu­lega og gerir þá kröfu til fólks að sam­fé­lags­leg vanda­mál séu rædd án þess að heilir trú­ar­hópar séu gerðir tor­tryggi­legir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum