Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sakar miðil um svik: „Hún hefur ekki enn skilað peningum mínum“

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Envato Elements
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd/Envato Elements

Erna Kristín varar við starfs­háttum íslensks miðils víðsvegar á samfélags­miðlinum Facebook. Erna segir farir sínar við miðilinn ekki sléttar og lýsir því hvernig endur­teknar tíma­tilfærslur að hendi miðilsins hafi gert það af verkum að hún hafi óskað eftir endur­greiðslu. Þá hafi miðillinn hætt að svara henni og Erna Kristín enn ekki fengið endur­greiðslu á 22 þúsund krónum sem reiddar voru fyrirfram. Hálft ár er síðan Erna pantaði umræddan tíma hjá miðlinum.

„Ég myndi passa mig að bóka ekki tíma hjá þessari konu, hún er miðill og tímarnir eru í gegnum instagram video. Ég hafði heyrt frá meðmæli með henni frá ýmsum áhrifa­völdum og bókaði því tíma hjá henni í nóvember 2022. Ég fékk tíma 23. mars 2023 og var svo spennt að ég taldi niður dagana. Hún frestaði tímanum mínum aftur og aftur þar til ég bað hana um endur­greiðslu.. Í dag er 5. apríl og hún hefur ekki enn skilað peningum mínum (22 þúsund)“

Erna Kristín birtir skjáskot af samskiptum sínum við miðilinn máli sínu til stuðnings. Fjölmargir hafa sett athuga­semdir við færslurnar og þó nokkrir lent í svipuðu klandri:

„Ég lenti í þessu sama með enda­lausar frestanir, vikum saman sem endaði á að ná tímanum og hann olli tölu­verðum vonbrigðum.“

„Hef sömu sögu að segja, því miður. Enda­lausar frestanir og endaði þannig að hún kláraði ekki tímann.“

„Ég tilkynnti hana til lögreglunnar. Sagði henni frá því og fékk þá endur­greitt.“

Miðillinn heldur úti Instagram-reikningi og er fylgjenda­hópurinn töluvert stór eða tæplega 3700 manns.

Mannlíf reyndi að hafa samband við umræddan miðil vegna málsins en án árangurs.

Rétt í þessu: Erna Kristín hefur uppfært færslurnar og segist nú hafa fengið endur­greitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim