Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Margrét er orðin dauðþreytt á kynþáttafordómunum

„Móðir mín hefur ítrekað þurft að þola nið­ur­læg­ingu og for­dóma vegna þess hvernig hún lítur út.“

Margrét Martins Sveinbjörnsdóttir
Margrét Martins Svein­björns­dóttir Margrét segir tími vera kom­inn fyrir for­dómana að hætta Mynd: Víkingur

Margrét Martins Svein­björns­dóttir opn­aði sig á dög­unum um kyn­þátta­for­dóma sem hún hefur orðið fyrir á Íslandi en móðir hennar er frá Angóla en faðir frá Íslandi.

Margrét og móðir hennarMargrét er orðin dauð­þreytt á for­dómunum

Margrét birti Facebook-færslu fyrir helgi sem vakið hefur mikla athygli en þar segir hún frá for­dómum sem hún hefur orðið fyrir hér á landi en hún kveðst vera orðin þreytt.

„Ég er dóttir konu frá Angóla og manns frá Íslandi. Og ég er orðin þreytt.

Þreytt á því að þurfa útskýra að húð­litur segir ekk­ert um mann­eskj­una. Þreytt á að heyra „þetta var nú bara brand­ari“, „þetta meinti hann/hún ekki svona“ eða „svona er þetta bara“. Þreytt á að vera spurð „en hvaðan ertu EIGINLEGA“?“ Þannig hefst færsla Mar­grétar sem hefur verið deilt 48 sinnum á Facebook. Segir Margrét einnig í færsl­unni að ras­ism­inn eigi sér ýmsar birt­ing­ar­myndir.

„Rasismi á Íslandi er ekki alltaf öskr­andi hat­urs­orð á net­inu – stundum birt­ist hann sem þögn, sem hunsun, sem hlið­ar­svipur, sem for­dómar faldir á bak­við „spurn­ingar“.

En svo koma dagar eins og und­an­farið, þegar fáfræðin öskrar. Þegar fólk heldur að það sé í lagi að smætta, úti­loka eða nið­ur­lægja aðra – bara vegna lit­ar­háttar eða upp­runa.“

Margrét og dæt­urnarMargrét með dætrum sínum

Þá seg­ist Margrét vera búin að fá nóg af þessum for­dómum.

„Ég er Íslend­ingur. Ég er Angólsk. Ég er meira en húðin mín. Og ég er búin að fá nóg.

Við erum komin fram yfir það tíma­bil þar sem hægt var að afsaka ras­isma með „van­kunn­áttu“ eða „gömlum hugs­un­ar­hætti“. Við höfum öll net, bóka­söfn, skóla og heila. Það er val að vera ras­isti. Og það val má gjarnan fara til HELVÍTIS.“

Að lokum segir Margrét að tími sé kom­inn til ræða saman og fræð­ast og rísa upp gegn ras­isma.

„Ef þér finnst þetta óþægi­legt – ímynd­aðu þér hvernig það er að lifa þetta. Á hverjum degi.

Við þurfum að tala, fræða, hlusta, verja – og rísa upp. Ekki bara þegar eitt­hvað „stórt“ ger­ist – heldur alltaf.“

Margrét með dætrum sínumMargrét hefur fengið meira en nóg

Mannlíf ræddi lít­il­lega við Margréti um færsl­una en hún útskýrði að móðir hennar hafi þurft að þoka ítrek­aða nið­ur­læg­ingu og for­dóma vegna útlits­ins.

„Móðir mín hefur ítrekað þurft að þola nið­ur­læg­ingu og for­dóma vegna þess hvernig hún lítur út. Þegar ég var barn, var hún oft rang­lega álitin barnapían mín – ekki vegna hegð­unar eða umönn­unar, heldur vegna þess að húð­litur okkar var ekki alveg eins. Nú, þegar hún er með barna­börnin sín, halda margir enn að hún sé au pair eða vinnu­kona.“

Segir hún að svo­leiðis for­dómar risti djúpt.

„Slíkir for­dómar fela í sér sárs­auka sem erfitt er að lýsa og sýna hversu djúpt rót­gróin birt­ing­ar­mynd kyn­þátta­hyggju getur verið – jafn­vel í hvers­dags­legum sam­skiptum.“

Hér má sjá færslu Mar­grétar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas