Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Inga Sæland segir ríkisstjórnina bera ábyrgð á dauðsföllum ungs fólks: „Gerir mig bara fokilla“

Inga Sæland formaður Flokks fólksins. Mynd / Alþingi
Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins. Mynd / Alþingi

Í gær hélt Heim­ildin kapp­ræður á milli flokk­anna fyrir kom­andi Alþing­is­kosn­ingar og var Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mætt fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins eins og góðum vara­for­manni sæmir. Talið barst fljót­lega að heil­brigð­is­málum en Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur verið heil­brigð­is­ráð­herra síðan 2021 og vildi Lilja meina að Willum hafi náð góðum árangri á kjör­tíma­bil­inu.

Nefndi Lilja að biðlistar væru styttri, efna­minni börn gætu farið í tann­rétt­ingar, greiðslu­þátt­taka sjúk­linga hafi lækkað og nýtt þjóð­ar­sjúkra­hús væri í bygg­ingu.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, var væg­ast sagt ósátt með orð Lilju og hélt langa ræðu þar sem rík­is­stjórn Íslands var meðal ann­ars sökuð um að bera ábyrgð á and­láti ungs fólks.

„Hvað hald­iði að sé mikið af auknum leg­u­rýmum í nýja Land­spít­ala háskóla­sjúkra­húsi við Hring­braut, dýr­ustu fram­kvæmd Íslands­sög­unnar í heil­brigð­is­málum?“ spurði Inga og svar­aði sjálf. „Ekki eitt ein­asta. Það fjölgar ekki um eitt ein­asta leg­u­rými og hvernig stendur á því að ennþá eru yfir 100 aldr­aðir sem liggja í dýr­ustu leg­u­úr­ræðum á Íslandi inn á Land­spít­ala háskóla­sjúkra­húsi? Hvernig stendur á því að hund­ruðir ein­stak­linga eru að deyja hér á biðlista und­an­farin ár? Það eru yfir 700 ein­stak­lingar sem eru að bíða eftir því að kom­ast á sjúkra­húsið Vog. Yfir 700 ein­stak­lingar og við vitum að unga fólkið okkar er að deyja hér á biðlistum og það er í boði þess­arar frá­far­andi hand­ó­nýtu rík­is­stjórnar. Það er algjör­lega ábyrgð stjórn­valda. Hvernig stendur á því að fólkið okkar kemst ekki í nauð­syn­lega lækn­is­þjón­ustu? Að hlusta á þetta inn­an­tóma blaður gerir mig bara fok­illa, svo ekki sé meira sagt. Ég er búin að vera í sjö ár alþings­maður á Alþingi Íslend­inga og að þurfa horfa upp á það hvernig inn­við­irnir eru að molna niður og hlusta á svo á mön­tru um að hér sé allt saman stand­andi styrkum fótum á meðan stór hluti sam­fé­lags­ins er að lepja dauð­ann úr skel og margir hverjir eru að missa hús­næði sitt. Þetta er nú aldeilis ábyrgt fólk, sem er nú vert að koma aftur til starfa. Ég segi nei, takk!“

Miðað við kann­anir er lík­legt að Flokkur fólks­ins fái í kringum 10% atkvæða og verður mögu­lega í lyk­il­stöðu þegar kemur að stjórn­ar­myndun eftir kom­andi alþing­is­kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn