Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Áhrifavaldar sækja Ísland heim: „Aldrei séð eins ábyrgðarlausa og heimskulega hegðun”

„Áhrifa­valdar sem sýna slæma hegðun laða ótillits­sama ferða­menn til Íslands,” segir Páll Jökull Pét­urs­son, ljós­mynd­ari og leið­sögu­maður, í við­tali við BBC. Lögbrot ferða­manna virð­ist vera vax­andi vanda­mál.

Ísland er vin­sæll áfanga­staður meðal áhrifa­valda á Instagram. „Þeir sýna glæfra­lega hegðun og brjóta regl­urnar. Þá verður þessi ímynd til um að á Íslandi sé allt leyfi­legt,” segir Páll og bætir við að margir sýni þó gott for­dæmi. „Aðrir sýna ólíka staði og leiðir til að njóta nátt­úr­unnar. Við gefum ekki upp staði sem við viljum vernda.”

View this post on Instagram

One of many waterfalls in the #faroeislands 📍Eiði Photo by: @palljokullphoto ——————————————— Follow @landscape_photography_iceland for some of the best photos from Iceland, and discover the beauty of my country! 🇮🇸 ——————————————— Admin: @palljokullphoto @landscape_photography_iceland

A post shared by Páll Jökull Pét­urs­son (@palljokullphoto) on May 9, 2019 at 12:16pm PDT

„Sumir staðir hafa orðið frægir á Instagram án þess að vitnað sé í stað­setn­ingu. Á end­anum vita allir hvar hann er”. Dæmi um slíkan stað er Fjaðrár­gljúfur á Suð­ur­landi. Í tón­list­ar­mynd­bandi Justin Bieber sést hann taka sund­sprett í gljúfr­inu. Eftir útgáfu mynd­bands­ins uxu vin­sældir staðs­ins. Þá hefur gljúfr­inu ítrekað verið lokað vegna jarð­vegs­skemmda umhverfis svæðið. Lokun stóð yfir í vor frá 27. febr­úar til 1. júní.

https://gamla.mannlif.is/4304

Sektaður fyrir utanvegaakstur

Áhrifa­vald­ur­inn Alex­ander „Sasha“ Tik­hom­irov er flestum íslend­ingum kunn­ugur. Hann var öku­maður bif­reiðar sem ekið var utan­vegar í Bjarn­arflagi við Mývatn og birti af sér mynd við bíl­inn þar sem hann var fastur. Þá fékk hann háa sekt þar sem ólög­legt er að keyra utan­vegar á Íslandi án þess að sér­stakt leyfi Umhverf­is­stofn­unnar liggi fyrir.

View this post on Instagram

Поздравьте, сегодня я попал на кругленькую сумму и чуть не окончил наш трип на второй день $$$ 🙂 Подробности в видео

A post shared by Alex­ander Tik­hom­irov (@sashatikhomirov) on Jun 2, 2019 at 2:05pm PDT

Rússinn sætti mik­illar gagn­rýni og var ekki par­sáttur með fram­komu íslenskra yfir­valda. „Ekki gera þetta, ekki gera hitt, ekki labba, hér má ekki anda. Það má ekki fljúga dróna hér þú mátt ekki fara af veg­inum og svo fram­vegis,“ segir við Instagram-mynd Tik­hom­irov.

Snýst allt um að ná ful­kominni mynd

Dæmi eru um að áhrifa­valdar keyri utan­vegar og jafn­vel undir áhrifum, sitji á jöklum og fljúgi drónum yfir hesta. Samkvæmt lögum um dróna­notkun á Íslandi er óheim­ilt að fljúga þeim nálægt og yfir byggð, líf­verur og flug­velli. Þá er einnig ólög­legt að keyra utan­vegar án leyfis frá Umhverf­is­stofnun þar sem akst­ur­inn getur valdið miklum skemmdum.

„Það er eins og allt snú­ist um Instagram og að ná full­kominni mynd,” segir Michalina Okreglicka í við­tali við BBC. Okreglicka er búsett á Ísland og starfar sem brúð­kaups­ljós­mynd­ari. „Ég hef aldrei séð eins ábyrgða­lausa og heimsku­lega hegðun eins og á Íslandi.” Hún segir áhrifa­valda ekki gera sér grein fyrir þessum reglum. „Ég hef verið að benda áhrifa­völdum að svona hegðun við­gang­ist ekki og þeir eigi að hætta þessu.”

Eyði­legg­ing á mosa er einnig vax­andi vanda­mál. Íslenskur mosi er mjög við­kvæmur og getur eyði­lagst ef traðkað er á honum. Mosinn kemur í veg fyrir jarð­vegseyð­ingu og varð­veitir vatn og raka. Þá er fjöldi örvera sem þrífst í mosa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas