Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Séra Davíð Þór hæðist að viðbrögðum Orra Páls: „Jesús: Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar!“

Davíð Þór Jónsson
Davíð Þór Jónsson

Séra Davíð Þór Jónsson, prestur í Lauga­neskirkju hæðist að viðbrögðunum við færslu hans frá í gær.

Í gær sagði Mannlíf frá færslu sem Davíð Þór skrifaði á Facebook í gær en þar skammast hann út í ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur en þó sérstak­lega beindi hann orðum sínum að Vinstri grænum. Sagði hann að það væri sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur en í færslunni var hann að gagnrýna þá ákvörðun Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra að senda hátt í 300 flótta­menn, konur og börn aftur til Grikk­lands þar sem aðstæður eru ekki mönnum bjóðandi. Viðbrögðin við færslunni voru að margra mati ansi sérstök en Davíð Þór var sagður hafa hótað Vinstri grænum vist í helvíti og steig til að mynda Orri Páll Jóhannsson, þingmaður Vinstri grænna, fram og sagði „með þessum ummælum er verið að ala á haturs­orðræðu í samfélaginu sem er eitt stærsta mein okkar samtíma. Það er grafal­varlegt að þjóð­kirkjan taki þátt í slíku,“ í samtali við Frétta­blaðið. Þá sagði biskup Íslands, Agnes M. Sigurðar­dóttir að orð Davíðs stangist á við siða­reglur presta.

Sjá einnig: Séra Davíð Þór kallar ríkis­stjórn Katrínar fasista­stjórn: „Þau eru einfald­lega sek eins og syndin“

Hér er færsla Davíðs Þórs þar sem hann hæðist að viðbrögðum Vinstri grænna:

„Jesús: Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér flytjið langar bænir að yfirskini og hlunn­farið ekkjur og hafið af þeim heimili þeirra. Þér munuð fá því þyngri dóm.

Farísei: Með þessum ummælum er verið að ala á haturs­orðræðu í samfélaginu sem er eitt stærsta mein okkar samtíma.“

Fyrir þá sem áttuðu sig ekki á tilvísunina hans Davíðs í uppruna­legu færslunni skal upplýsast að Madeleine K. Albright, fyrr­verandi utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna sagði í ræðu árið 2006 að það væri „sérstakur staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki öðrum konum.“ Þá sögðu bæði séra Martin Luther King og John F. Kennedy bandaríkja­forseti, svipaðar setningar í ræðum sínum og vitnuðu þannig hálf­partinn í ljóð Dante, Hinn guðdóm­legi gleði­leikur en King sagði árið 1967: „Heitustu staðir helvítis eru fráteknir fyrir þá sem halda hlutleysi sínu á tímum siðferðis­kreppu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra