Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Þarft að sanna neyð til að fá aðstoð: „Neyðarástand að mörgu leyti“

Bíll Samhjálpar – myndin tengist fréttinni ekki beint
Bíll Sam­hjálpar – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Samhjálp hefur tekið upp skrán­ing­ar­kerfi.

Kaffi­stofa Sam­hjálpar hefur nú tekið upp á því að biðja fólk um að sýna fram á neyð til þess að fá að heim­sækja kaffi­stof­una. Til þess að geta leitað aðstoðar þarf fólk að skrá sig inn í heima­banka og vef Skatts­ins og sýna starfs­fólki Sam­hjálpar. Þetta sé gert til að bregð­ast við neyð­ar­á­standi að sögn Eddu Jóns­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Sam­hjálpar.

„Við höfum ásamt Hjálp­ræð­is­hernum verið þau sam­tök sem taka á móti þeim sem eru án kenni­tölu. Þannig að við erum að sinna þeim hópi líka og þau eru að leita til okkar. Og eru bara mjög vel­komin og ynd­is­leg við­bót við sam­fé­lagið hjá okkur,“ sagði Edda við RÚV um þá ein­stak­linga sem ekki eru með kenni­tölu svo sem hæl­is­leit­endur. Edda sagði að ein­stak­lingum sem leita aðstoðar hafi fjölgað gríð­ar­lega mikið. Ekki ein­göngu sé þó um inn­flytj­endur að ræða heldur heim­il­is­laust fólk líka.

„Þar hefur líka orðið aukn­ing og þar er hreyf­an­leiki líka, vegna þess að sumir fá síðan kannski úthlutað hús­næði og eru þar í ein­hvern tíma. Koma svo aftur. Þetta er á ýmsa vegu.“

Að sögn Eddu sé fjöldi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem leita aðstoðar slíkur að hægt sé að setja spurn­inga­merki við hvort ríkið sé að standa sig nógu vel í þeim mála­flokki.

„Maður veit líka ekki alveg með aðstöðu fólks á öllum stöðum. Eru þau með aðstöðu til að elda mat? Ég myndi til dæmis ekki treysta mér til að lifa á þess­ari upp­hæð sem þau fá. Þetta er alla­vega raun­veru­leik­inn. Þau eru að koma til okkar.“

Edda telur að það hafi orðið ein­hver fækkun í aðstoð eftir að skrán­ing­ar­kerfið var tekið upp.

„Þannig að það eru ákveðnar líkur á að ein­hverjir hafi nýtt það sem þurftu ekki raun­veru­lega á því að halda. En svo er þetta svo erfitt að meta, því fólk er auð­vitað í alls kyns aðstæðum. Við þekkjum bara hvernig hús­næð­is­mark­að­ur­inn er í dag og margt fólk er auð­vitað að greiða háa leigu. Þetta bara helst allt í hendur. Mat­ar­kostn­aður er orð­inn mjög hár þannig að það er bara neyð­ar­á­stand að mörgu leyti fyrir stóran hóp fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum